Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna: Brautarland 19, sem er glæsilegt og mikið endurnýjað 130,6 fm enda-raðhús á einni hæð, á frábærum stað í Fossvoginum. Húsið stendur innst í botnlanga við opið svæði. Innra skipulag er mjög fallegt en úr eldhúsi er opið inn í borðstofu og stofu með mikilli lofthæð. Í framhaldi af stofunni er gengt út á stóra suðurverönd. Tvö svefnherbergi eru í húsinu í dag og er baðherbergi innaf stærra svefnherberginu en gestasalerni innaf því minna. Sjónvarpsherbergi er útfrá stofu en því væri auðvelt að breyta í svefnherbergi. Innaf eldhúsi er þvottahús og geymsla.
Húsið var mjög mikið endurnýjað á árunum 2005 til 2007 og hefur síðan þá fengið gott viðhald.Eignin Brautarland 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-7148, birt stærð 130.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is
NÁNARI LÝSING:Aðalinngangur er á norðurhlið hússins. Komið er inn í
forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Svefnherbergi er á hægri hönd og inn af því er gestasalerni með innréttingu undir vaski, dúk á gólfi og flísum á veggjum .
Eldhúsið er einstaklega bjart og opið inn í stofu. Hvít innrétting með svörtum stein á borðum og miklu vinnuplássi. Einnig er steinn ofan á lágum vegg sem skilur að eldhús og borðstofu. Gólfhiti er í eldhúsi og forstofu. Auka inngangur í húsið er í austur enda eldhúss. Inn af eldhúsi er
þvottahús með dúk á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara, gott vinnuborð, hillur á veggjum og stigi upp í
geymslu á millilofti.
Mikil lofthæð er í
borðstofu og
stofu, sem mynda stórt og fallegt alrými með eldhúsinu, þar sem gólfsíðir gluggar og rennihurð framlengja rýmið út á stóra suður verönd og gróinn garð.
Sjónvarpsherbergi er útfrá stofu með gluggum í suður og hurð út á verönd. Auðvelt væri að breyta því í þriðja svefnherbergið.
Hjónaherbergið er mjög rúmgott og með stórum gluggum sem snúa út í garðinn fyrir sunnan húsið. Innangengt er á
baðherbergi með dúk á gólfi og gólfhita og veggir eru físalagðir upp í loft. Þar er stór sturtuklefi, vegghengt salerni, handklæðaofn, stór hvít innrétting með dökkblárri stein plötu og glervaskur. Stór spegill er fyrir ofan innréttinguna.
Fataherbergi er við hlið svefnherbergis.
Viðarparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi, gestasalerni og þvottahúsi, þar er dúkur og flísar eru á gólfi forstofu.
Garðurinn er vel skipulagður og kallar ekki á mikla vinnu við umhirðu. Fyrir framan húsið, norðanmegin, er breið steypt stétt frá götu að aðal inngangi hússins. Runnar eru meðfram stétt og götu. Þá er steypt bílastæði fyrir tvo bíla fyrir framan húsið. Snjóbræðsla er undir bílastæði og stétt fyrir framan húsið. Að austanverðu er skjólgirðing með hliði á norðurenda. Steypt stétt er innan girðingarinnar, meðfram allri austurhlið hússins. Fyrir sunnan húsið er falleg steypt verönd meðfram öllu húsinu og tré og runnar á lóðarmörkum.
Brautarland 19 er einstök eign á frábærum stað í Fossvogi, Eignin var mikið endurnýjuð á árunum 2005 til 2007 og hefur fengið gott viðhald síðan. Frábært innra skipulag, mikil lofthæð og garðurinn hannaður til útiveru en án þess þó að þurfa mikla umhirðu.
Niðurlag:Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala