Gimil Fasteignasala kynnir til leigu - hæð að Freyjugötu 28 í miðborg Reykjavíkur. Íbúðin er björt og rúmgóð og hefur verið endurnýjuð á vandaðan hátt. Gengið er inn um sameiginlegan inngang frá Freyjugötu. Í íbúðinni eru tvö björt og rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, vandað eldhús með góðu skápaplássi og stór stofa/borðstofa þar sem útgengt er á suðursvalir með fallegu útsýni. Íbúðin leigist til sex mánaða í senn og fylgja húsgögn og allur helsti húsbúnaður. Húsið er allt hið glæsilegasta og staðsetningin einstök. Í húsinu eru þrjár íbúðir.
Upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 792-7576, gudmunda@gimli.is.