Gimli kynnir: MJÖG SKEMMTILEGT OG VEL SKIPULAGT EINBÝLISHÚS SEM SAMANSTENDUR AF HÆÐ OG KJALLARI AUK BÍLSKÚRS, SAMTALS 232 FM – MÖGULEIKI Á AUKÍBÚÐ Í KJALLARA.Nánari lýsing: Komið er í
forstofu með skáp. Flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa og glugga.
Hol, borðstofa og stofa mynda mjög góða heild og er útgengt á
stórar svalir frá stofu og eru tröppur frá svölum niður í
garð. Til hliðar við eldhús og í framhaldi af stofu er
borðstofa en möguleiki væri á að útbúa þar svefnherbergi.
Eldhús með vel hvítri innréttingu, viðarborðplötu og góðum tækjum.
Svefnherbergin á hæðinni eru
tvö; rúmgott hjónaherbergi með
tveimur tvöföldum skápum og gott barnaherbergi með skápum.
Gólfefni hæðar: Harðparket er á öllum gólfum nema á baðherbergi þar eru flísar og dúkur á forstofu og í eldhúsi.
Frá forstofu er
stigi niður í kjallara. Sérinngangar eru í hvorum í enda kjallara.
Í kjallara eru 5 svefnherbergi, snyrting/geymsla, baðherbergi og þvottahús.
Öll herbergin eru í góðri stærð og þar af eitt sérstaklega rúmgott, var notað sem stofa fyrir aukaíbúð.
Gólfefni: Harðparket er á herbergjum, flísar á snyrtingu og gangi en málað gólf í þvottahúsi.
Það væri mjög auðvelt að útbúa 60 fm 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í hluta kjallara, sem skiptist í forstofu, lítið svefnherbergi, stærra herbergi, eldhús, stofu og baðherbergi með sturtu.Gólfefni: Harðparket er á herbergjum, flísar á snyrtingu og gangi en málað gólf í þvottahúsi.
Bílskúrinn er rúmgóður 33,3 fm (af heild) með nýrri bílskúrshurð og heitu og köldu vatni.
Manngengt risloft er yfir húsi
Eignin hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum að sögn seljanda;
2014 var skipt um þak og einnig voru raf-, vatns-, ofna- og frárennslislagnir endurnýjaðar. Árið 2016-17 var skipt um alla glugga og allt gler í húsinu. Húsið er timburhús með steyptum kjallara, klæðningin að utan er úr Asbesti.
Snyrtileg lóð með garðhúsi sem fylgir með í kaupunum.
Allar nánari upplýsingar gefur Ellert í s.
661-1121 eða ellert@gimli.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3.800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.