Gimli fasteignasala logo
Skráð 29. sept. 2026
Söluyfirlit

Krókavað 6

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
127.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
783.529 kr./m2
Fasteignamat
101.550.000 kr.
Brunabótamat
67.700.000 kr.
Mynd af Herdís Valb. Hölludóttir
Herdís Valb. Hölludóttir
Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur
Byggt 2005
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2278199
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Kominn tími á viðhaldi og endurnýjun m.a. á gólfefni, einhverjum glerjum, eldhúsinnréttingu og verönd.
Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna:  Falleg og rúmgóð neðri hæð með sérinngangi, góðum afgirtum garði og sólríkri viðarverönd að Krókavaði 6, 110 Reykjavík. 
Eignin skiptist í, anddyri, gang, eldhús, stofu og borðstofu, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymslu.
Eignin Krókavað 6 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-8199, birt stærð 127.5 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Herdísi í síma 694-6166 eða herdis@gimli.is

* Sérinngangur
* 3 rúmgóð svefnherbergi
* Þvotthús innan íbúðar
* Verönd
* Góður garður


NÁNARI LÝSING:
Komið er inn í rúmgott anddyri með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Á svefnherbergisálmu eru 3 rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskápum. Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og rými fyrir þvottavél og þurrkara.
Flísalagt baðherbergi með veggföstu salerni, góðri innréttingu, handklæðaofn, sturtu og baðkari. Eldhús, borðstofa og stofa eru í opnu og björtu rými. Eldhús er með góðu skápaplássi, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar með útgengt út á timburverönd. Gott hellulagt bílastæði og fyrir aftan hús er rúmgóður og afgirtur garður. Gólfefni íbúðar er eldra plastparket og flísar.
* Notast er við gervigreind við myndvinnslu til fegrunar og tiltektar.
Niðurlag: Virkilega vel skipulögð 4ra herb. hæð, staðsett á eftirsóttum stað í Norðlingaholti. 
Stutt er í helstu þjónustu s.s. leikskóla, skóla og matvörubúð.

Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur herdis@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin