Gimli fasteignasala logo
Skráð 3. sept. 2026
Söluyfirlit

Lækjasmári 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
97.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.900.000 kr.
Fermetraverð
893.114 kr./m2
Fasteignamat
78.500.000 kr.
Brunabótamat
59.820.000 kr.
Mynd af Kristján Gíslason
Kristján Gíslason
Viðskiptafræðingu / Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2000
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2239856
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
8
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Lóð
3,32
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna:  Lækjasmári 8, 201 Kópavogur, sem er 3ja herb. íbúð á annari hæð í vönduðu fjölbýli. Íbúðin er einstaklega vel umgengin, rúmgóð og björt.
Íbúðin er 97,3 fm að meðtalinni 7,5 fm geymslu í kjallara. Íbúðin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi, sem er innan íbúðar. Rúmgóðar svalir, sem eru að hálfu yfirbyggðar og snúa í suður. 
Íbúðinni fylgir stæði í bílakjallara.     
Íbúðin er laus við kaupsamning.


Eignin Lækjasmári 8 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-9856, birt stærð 97.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Anddyri/gangur: Parket á gólfi og stór fataskápur.
Þvottahús; Flísar á gófi, vaskur og góð innrétting.
Svefnherbergi I: Parket á gólfi og stór fataskápur.
Svefnherbergi II: Parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, vegghengt salerni, stór innrétting í kringum vaskinn, sturtuklefi.
Eldhús: Opið inn í stofu, parket á gólfi, eldhúskrókur við glugga, nýlegur bakarofn og uppþvottavél fylgir.
Stofa/borðstofa: Stór og björt, parket á gólfi og gengt út á svalir.
Svalir: Eru 12 fm, snúa í suður, flísar á gólfi og eru yfirbyggðar að hluta.
Bílastæði í kjallara: merkt B10 og búið er að leggja fyrir bílahleðslustöð að stæðinu.
Geymsla: Sérgeymsla með hillum er í sameign í kjallara og er 7,5 fm.
Vagna- og hjólageymsla: Er í sameign í kjallara.
Á öllum gólfum íbúðarinnar er eikarparket, nema á þvottahúsi og baðherbergi, þar eru flísar. Allar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi, anddyri og í herbergjum eru sérsmíðaðar og einstaklega vel með farnar.
Útihurð íbúðar er ný og einnig er nýlegt teppi á stigangi, sem er mjög snyrtilegur eins og öll sameignin.
Húsið: er álklætt og því viðhaldslétt.
Lóðin: er gróin og fær góða umhirðu og er allt umhverfi hússins mjög snyrtilegt. Kópavogsbær hefur veitt húsfélaginu verðlaun fyrir fallegan garð og góða umgengni.
Bílastæði: Eru fjölmörg í kringum húsið og er búið að setja upp rafhleðslu fyrir bíla við nokkur þeirra.
Stutt er í alla þjónustu á Smáratorgi og í Smáralind auk þess sem leik- og grunnskólar eru rétt hjá. 

Niðurlag:
Nánari upplýsingar veitir: Kristján Gíslason Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 691-4252, tölvupóstur kristjan@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Byggt 2000
Fasteignanúmer
2239856
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
0
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.970.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin