Miðleiti 1, 103 Reykjavík (Kringlan/Hvassal)
79.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
126 m2
79.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1983
Brunabótamat
56.210.000
Fasteignamat
69.500.000

GIMLI KYNNIR - MJÖG FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 1. HÆÐ (JARÐHÆÐ) Í FJÖLBÝLISHÚSI.
ÍBÚÐINNI FYLGIR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU, KOMIN ER RAFHLEÐSLUSTÖÐ Í STÆÐI.
ÍBÚÐIN ER LAUS VIÐ UNDIRRITUN KAUPSAMNINGS.
ÚTGENGT Á HELLULAGÐA VERÖND TIL SUÐURS

Samkvæmt skráningu hjá HMS þá er íbúðin skráð 101,7 fm stæðið í bílageymslu 24,9 fm auk þess fylgir íbúðinni geymsla sem er ekki skráð í heildarfermetrum eignar.
Nánari lýsing: Komið er í gang sem annars vegar liggur í átt að herbergjum og hins vegar að eldhúsi og stofum. Fatahengi og skápur eru í gangi. Barnaherbergi með skáp. Hjónaherbergi með góðum skápum. Stórt og gott þvottahús með innréttingu. Flísalagt baðherbergi með baðkari og innréttingu. Eldhús með ágætri innréttingu, nýlegri eldavél, viftu og borðkrók. Á móti eldhúsi er búr. Góð stofa og boðstofa þaðan sem útgengt er á  nokkuð stóra hellulagða verönd til suðurs.
Gólfefni:
Harðparket og flísar.
Í kjallara er gengt í bílageymslu, þar er einnig góð geymsla ca 8-10 fm sem er ekki skráð í heildarfermetrum eignar.

Húsið að utan virðist vera í góðu ástand enda hefur það alltaf fengið gott viðhald að sögn eiganda.
Á undanförnum 5 árum hefur húsið verið tekið í gegn að utan, sprungulagað, málað og skitpt um þá glugga sem þurfti.
Bílakjallarinn var alveg tekin í gegn, sett nýtt brunakerfi, ný hurð á bílageymslu, hleðslustöðvar við hvert bílastæði.
Skipta um lyftu.
Bílastæði fyrir frama hús var lagað og settar nokkrar hleuðslustöðvar.

Staðsetning er góð miðsvæðis í Reykjavík þaðan sem stutt er í alla almenna þjónustu.
 
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR ELLERT S. 661-1121 EÐA Á SKRIFSTOFU S. 570-4800, [email protected]
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.000,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á. 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.