Gimli fasteignasala logo
Opið hús:18. apríl kl 12:00-12:30
Skráð 15. apríl 2026
Söluyfirlit

Þurárhraun 4

Nýbygging • RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
130.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
82.900.000 kr.
Fermetraverð
636.224 kr./m2
Fasteignamat
44.350.000 kr.
Byggt 2024
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Aðgengi fatl.
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2518319
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
nei
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Gimli fasteignasala kynnir í einkasölu: Glæsilegt steypt miðjuraðhús með innbyggðum bílskúr í byggingu á einni hæð á frábærum stað í nýju hverfi í Þorlákshöfn.

Um er að ræða 4ra herbergja endaraðhús í byggingu með bílskúr, flottum gólfsíðum gluggum í stofu og eldhúsi ásamt rennihurð út í garð úr stofu. 
Húsið er samtal 130,5 fm. og þar af er bílskúr 22,9 fm. Samkvæmt teikningu þá skiptist húsið í forstofu, eldhús og stofu í alrými, 2 svefnherbergi, hjónaherbergi með rennihurð út í garð, baðherbergi með hurð út í garð, bílskúr og þvottahús inn af bílskúr.
Húsið afhendist fullbúið að innan og utan, bakgarður er tyrfður en mulningur í bílaplani. 
Hitalagnir eru í gólfum, innfeld lýsing í stofu og eldhúsi. Búið er að gera ráð fyrir að hægt verði að setja snjóbræðslu í planið. Komin er öflug bílahleðslustöð fyrir framan bílskúrinn. Innihurðar og harðparket eru frá Birgisson, innréttingar eru frá IKEA ásamt heimilistækjum, hreinlætistæki eru frá Tengi og steinn á eyju og í eldhúsi eru frá Steinlausnum.
Virkilega fallegt og vandað hús þar sem fermetrarnir nýtast vel.

Afhending við kaupsamning.


Nánari upplýsingar veitir Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 690-2602, tölvupóstur elin@gimli.is

NÁNARI LÝSING:

Forstofa: með flísum á gólfi og forstofuskáp.
Eldhús/stofa: Rúmgott alrými með gólfsíðum gluggum, eldhúsinnrétting með dökkri viðaráferð, stein á borði og á vegg á milli skápa, stór eldunareyja með spanhelluborði með innbyggðum háf, glæsilegur steinn frá Steinsmiðjunni á eyju sem hægt er að sitja við, ofn og örbylguofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Úr alrými er rennihurð út í garð að framan verðu þar sem gert er ráð fyrir palli.
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum og rennihurð út í garð.
Svefnherbergi #2: með harðparketi og fataskáp.
Svefnherbergi #3: með harðparketi og fataskáp. 
Baðherbergi: mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með ljósum 60*60 flísum, upphendu wc, innréttingu með vaski og speglaskáp með ljósum fyrir ofna. Walk in sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Hurð út í garð og gluggi. Vatn og rafmagn fyrir þvottavél og þurrkara er til staðar. 
Bílskúr: innangengt úr holi, epoxý á gólfi, sjálfvirkurhurðaopnari á bílskúrshurð, bílahleðslustöð fyrir framan bílskúr, innrétting með vaski.
Þvottahús: er inn af bílskúr þar sem gert er ráð fyrir þvottavel og þurrkara í vinnuhæð.
Lóð: skilast tyrfð að aftan þar sem búið er að gera ráð fyrir heitum potti, (rör til staðar) og að frama er mulningur í bílaplani og komin er  bílahleðslustöð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að tengja snjóbræðslu í bílaplan sem kaupandi sér um að setja og tengja. 

Eign sem vert er að skoða.

Niðurlag:
Róleg og fjölskylduvæn staðsetning þ.s grunnskóli, leikskóli, sundlaug og íþróttasvæði er í góðu göngufæri. Í Þorlákshöfn er öll þjónusta fyrir fjölskyldur með börn til mikillar fyrirmyndar og er mjög gott íþrótta- og tómstundastarf í bænum. Grunn- og leikskólastarf er mjög gott. Í næsta nágrenni er 18 holu golfvöllur og í bænum er öflugt hestamannafélag. 

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Byggt 2024
22.9 m2
Fasteignanúmer
2518319
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Matsstig
4 - Fokheld bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hulduland 16
800 Selfoss
133.8 m2
Raðhús á einni hæð
312
632 þ.kr./m2
84.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Grundarland 19
800 Selfoss
133.8 m2
Raðhús á einni hæð
423
620 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dynskógar 14
810 Hveragerði
151.7 m2
Einbýlishús á einni hæð
423
521 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Langahraun 12
810 Hveragerði
129.2 m2
Raðhús á einni hæð
413
618 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin