Gimli fasteignasala logo
Opið hús:18. maí kl 17:15-17:45
Skráð 14. maí 2026
Söluyfirlit

Langholtsvegur 93

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
84.4 m2
3 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
946.682 kr./m2
Fasteignamat
69.000.000 kr.
Brunabótamat
54.900.000 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Byggt 1951
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2020538
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Sérlega falleg og mikið endurnýjuð sérhæð með sérinngangi og sólpalli með heitum potti. Eignin er í heildina skráð 84,4 fm og skiptist í alrými /hol, eldhús með borðkrók, stofu, svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar og geymslu í kjallara. Bílskúrsréttur fylgir eigninni ásamt bílastæði. 
Bókið skoðun hjá Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Alrými /hol: Komið er inn í alrými /hol með eldhúsi á vinstri hönd og stofu á hægri hönd. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Nýlega endurnýjað með hvítri innréttingu frá Ikea, borðplata úr steini frá Granítsteinum. Innbyggð uppþvottavél og ískápur/frystir, vaskur frá Eirvík. Harðparket á gólfi. 
Stofa: Björt með gluggum á tvo vegu. Harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi: Nýlegir fataskápar frá Ikea með rennihurðum og harðparket á gólfi. Útgengi á svalir. 
Baðherbergi: Mjög rúmgott með gluggum á tvo vegu. Gólf og veggir flísalagðir með gráum flísum frá Birgisson. Baðkar með glersturtuþili og blöndunartæki frá Tengi. Vegghengt salerni og nýleg hvít innrétting með vaskaskápi frá Ikea. 
Þvottahús: Flísalagt með gráum flísum frá Birgisson. Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flott handlaug með svörtum tækjum. Gluggi. 
Sólpallur: Stór, afgirtur sérpallur með 8 manna heitum potti frá NormX
Geymsla: Sérgeymsla með glugga, 6,1 fm  er staðsett í kjallara. 
Bílskúrsréttur: sem tilheyrir þessum eignarhluta í húsinu er háður samþykki byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar. Aðkoma/stæði að mögulegum bílskúr fylgir einnig.
Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús. 

Sérlega glæsileg og vel staðsett lúxuseign.

Viðhald að utan skv. eiganda:
Nýir gluggar, útidyra og svalahurð eru frá Rationel gasfylltir með hljóðeinangrun. (fyrir utan einn glugga sem er eldri).
2024 var þakjárn, þakpappi og þakrennur endurnýjaðar.
2022 Bílaplan malbikað og innkeyrsla hellulögð. Veitur skiptu út heitavatnslögnum frá götu og inn í hús og settu upp digital mæla.
2018 voru gerðar múrviðgerðir að hluta
2014 var dren og skólp lagfært

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Árskógar 6
109 Reykjavík
94.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
827 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin