Gimli fasteignasala Vefsíða logo
Skráð 21. nóv. 2025
Söluyfirlit

Litla Berg 0

FjölbýlishúsVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
198.1 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
352.852 kr./m2
Fasteignamat
53.000.000 kr.
Brunabótamat
87.450.000 kr.
Byggt 1982
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2107897
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Bárður  H Tryggvason kynna 198.1 fm einbýlishús við Litla Berg staðsett í 4  húsa botnlanga á fallegum stað á Kleppjárnsreykjum í Borgarfirði.
Bókið skoðun.
Eignin Litla Berg er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 210-7897, birt stærð 198.1 fm. Þar af er bílskúrinn 41,4 fm.
Húsið er byggt 1978 og stendur á 1.462 fm lóð. 
Húsið skiptist í forstofu, 4 svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahús, gestasnyrtingu og bílskúr.
Innangegnt er í bílskúrinn úr íbúð.
Grunnskóli og leikskóli er í göngufæri við húsið. Sundlaug og heilsurækt er á Kleppjánrsreykjum.
Reykholt í næsta nágrenni. 
Húsið er laust við kaupsamning.

NÁNARI LÝSING:
Forstofa með skáp og flísum á gólfi.
Eldhúsið er rúmgott flísalagt með hvítri innréttingu.
Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Stofa og borðstofa og útgengi út í garð.
Baðherbergið er flísalagt með hornbaðkari og sturtuklefa og innréttingu, gluggi á baði. 
Svefnherbergin eru 4 og öll ágætlega rúmgóð, góðir skápar í hjónaherbergi.
Bílskúrinn er 41,3 fm með góðri lofthæð.
Úr þvottahúsi er gengið út á lítinn pall þar sem er heitur pottur (skel).
Harðparket og flísar á flestum gólfum.
Húsið er steinhús sem byggt er úr steyptum einingum.
Hitaveita sem er á fastagjaldi.
Garðurinn r vel ræktaður og sérlega fallegur. Möl er í bílaplani og gangstétt er hellulögð.
Niðurlag:
Frábært tækifæri að eignast einbýlishús á mjög fallegum stað í Borgarfirði þar sem er grunnskóli og leikskóli.
Náttúrufegurð einstök.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður H Tryggvason Sölustjóri, í síma 8965221, tölvupóstur bardur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.


Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Byggt 1978
41.4 m2
Fasteignanúmer
2107897
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
12.950.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
© Copyright 2025 - Gimli fasteignasala Vefsíða
Knúið af
Fasteignaleitin