Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna í einkasölu:
Virkilega bjart og fallegt 4ra -5 herbergja parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Um er að ræða vel skipulagt parhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr samtals 142,6 fm þar af bílskúr 38,2 fm.
Húsið skiptis í forstofu, stofu, stórt eldhús með stórri eldunareyju, baðherbergi, þrjú herbergi, þvottahúsi, háaloft, bílskúr þar sem hægt er að bæta við fjórða herberginu og þar er búið að útbúa salerni en á eftir að klára að gera sturtu, allar lagnir eru til staðar.
Gólfhiti er í öllu húsinu og innbyggð lýsing. Síðasta sumar var planið steypt og sett snjóbræðsla í bílastæðið og að anddyrinu, einnig var steypt verönd á tveimur hliðum hússins. Búið er að gera ráð fyrir rafmagni á bílaplani og tengi fyrir heitann pott til staðar á veröndinni. Harðparket og flísar á gólfum. Nánari upplýsingar veita: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða Lilja Hrafnberg í síma 820-6511, eða lilja@gimli.is.NÁNARI LÝSING:Forstofa: með gráum flísum og góðum hvítum fataskápur.
Eldhús/borðstofa/stofa: í björtu alrými með stórri hvítri innréttingu, innbyggðum ísskáp, innbyggð uppþvottavél, góðri eldunareyju með spanhelluborði og bakaraofni í vinnuhæð. Útgengt úr borðstofu út á steypta verönd.
Stofa: með stórum gluggum og útgönguhurð út á steypta verönd.
Hjónaherbergi: rúmgott með parketi og góðum skápum.
Svefnherbergi #2: með parketi og skáp.
Svefnherbergi #3: með parketi
Baðherbergið: er mjög rúmgott með gráum flísum á gólfi og á veggjum. Walk in sturta með sturtugleri. Innrétting með handlaug ofan á borði. Upphengt salerni, handklæðaofn og glugga.
Þvottahús/háaloft: með hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og með vaski. Stigaop upp á háaloft. Innangengt inn í bílskúr.
Bílskúr: rúmgóður bílskúr þar sem hægt er að útbúa fjórða herbergið, búið er að útbúa baðherbergi en það á eftri að klára að útbúa sturtuna, allar lagnir eru til staðar og málað gólf. Gluggi og útgönguhurð út í garð. Innkeyrsluhurð með gönguhurð. Málað gólf.
Baðherbergi 2#: inn í bílskúr er búið að útbúa baðherbergi með innbyggðu klósetti, innréttingu með vaski og spegli fyrir ofan. Það á eftir að klára sturtuna, en allar lagnir eru til staðar. Málað gólf.
Lóð: með steyptu bílaplani með sjóbræðslu, búið er að gera ráð fyrir rafmagni á planinu og tengi fyrir heitann pott til staðar á veröndinni.
Niðurlag:Frábært fjölskylduhús á fallegum stað á Eyrarbakka. Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala