Gimli fasteignasala og Ólafur B Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
HAFNARBRAUT 8
BÍLDUDALUR - EINBÝLI Á EINNI HÆÐ, FRÁBÆR STAÐSETNING.
ALGJÖRLEGA ENDURBYGGT FALLEGT 108,2 FM EINBÝLISHÚS Á FALLEGUM STAÐ NIÐUR VIÐ HÖFNINA.
Húsið skiptist þannig :Forstofa, Eitt herbergi innaf forstofu. Þvottahús. Eldhús, Hjónaherbergi, stofur. Baðherbergi.
Útilýsing með sólúri, sjálrvirkt
Lofthæð ca. 2,56 - 3,60, upptekin loft.
Yfirlit standsetningar sem framkvæmt var árið 2025
Plata endursteypt.
Den og skólplagnir allt nýtt út í götu.
Heimtaugar allar nýjar.
Box f. ljósleiðara klárt til að tengja.
Rör frá aðaltöflu út að sorpgeymslu, f. rafhleðslustöð.
Allt þak endurnýjað, sperrur og allt annað.
Húsið er allt einangrað að utan með steinull á álleiðarakerfi og klætt með bárujárni.
Inni.
Allar neysluvatnslagnir nýjar, allar raflagnir, ofnar, tafla og ídráttur nýtt.
Allt í eldhúsi er nýtt, Ikea innrétting. Spanhelluborð.
Baðherbergi, allt nýtt, innrétting, sturtuklefi flísalagt.
Gólf, flísalagt og veggir í sturtu.
Gólfefni hússins er harðparket frá Agli Árnasyni.
Allar innihurðar nýjar frá Agli Árnasyni.
Þvottahús með innréttingu, vaskur.
Lóðin er öll ný tyrfð. Steyptar stéttar við inngang.
Steypt undir sorptunnur og forsteypt tunnuskýli.
Úr stofunni eru svalir sem eru 1,80 x 3,20.
Kynding er rafmagns, allir ofnar nýir ásamt hitatúpu sem ca. 120 ltr.
Ath. Bátaskýli við hlið hússins sem sýnt er á teikningu er á sér lóð og fylgir ekki þessu húsi.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 6900811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til olafur@gimli.is
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.