Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason kynna 43,3 fm íbúð við Grettisgötu 44 A.
Íbúðin er í kjallara og með sérinngangi í fallegu járnklæddu timburhúsi sem upphaflega er byggt 1912.
Íbúðin er laus strax.Húsið hefur verið mikið endurnýjað að sjá og nýlega er búið að mála það að utan sem og þak og glugga, múrviðgera steypta fleti og mála.
Framundan stendur til að laga tröppur niður í þessa íbúð og tröppur sem liggja að inngangi uppí hinar íbúðir hússins.
Þak er nýlega málað en til stendur á næstu árum að skoða það nánar upp á endurbætur, uppýsingar sem undirritaður fékk hjá einum eiganda í húsinu.NÁNARI LÝSING:
Alrými/stofa og innaf henni er gengið upp tvær tröppur inní svefnrými með opnanlegum glugga og rennihurð sem hægt er að loka.
Eldhús með lítilli innréttingu.
Baðherbergi með sturtuklefa og flísum á gólfi.
Gluggar og gler virðast vera heillegt.
Flísar eru á alrýminu en harðparket á eldhúsi.
Lagnir eru mikið til utan á liggjandi.
Íbúðin er til afhendingar strax.Fasteignamat íbúðarinnar er í dag kr. 45,050,000.
Ekkert starfandi húsfélag er í húsinu en það stendur til að stofna það fljótlega.
Eignin Grettisgata 44 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-7901, birt stærð 43.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 00-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Bárður H Tryggvasyni í síma 8965221, eða bardur@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala