Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Löggiltur fasteignasli sími 899 9787 kynna: Glæsilegt nýlegt (2023) einbýli á einni hæð á stóru eignarlandi í Svínadal í Hvalfjarðarsveit. Húsið er 166,2 m² og eignarlandið 29,7 hektarar. Hluti landsins er skógi vaxið. Einstök eign með útsýni eins og best verður.Nánari lýsing:Komið inn í rúmgóða
forstofu, flísar á gólfi og fataskápar er ná að lofti
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, walkin sturta með gler sturtuskjóli og stórum sturtuhaus ,handklæðaofn og upphengt salernimeð upphengdu salerni.
Stofa og eldhús eru í stóru björtu samliggjandi rými með gluggum á þrjávegu, gegnt er út á verönd úr stofunni. Gólfsíðir gluggar á tvo vegu og einstakt útsýni
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu sem nær að lofti, stór eyja með vaski, helluborði og miklu skápaplássi, stein borðplata.
Herbergi 1 rúmgott 11,0 m²
Herberi 2 stórt hjónaherbergi 12,4 m² með miklu skápaplássi
Verönd, steypt verönd er með öllum hliðum hússins.
Bílskúr er mjög rúmgóður 51,3 m², Epoxi á gólfi og fjarstýrður hurðaopnari.Innangengt er í íbúðarrýmið.
Geymsla með glugga er í enda bílskúrs.
Þvottahús með hurð út í garð er innaf bílskúr
Lóð, húsið stendur á 29,7 hektara eignarlandi sem er að hluta skógi vaxin.Staðsetning er frábær og er um 40 mín akstur frá Reykjavík á malbikuðum vegi. Húsið sendur á lagum ási og er einstaktútsýni er frá húsinu, einungis um 5 mín gangur að Eyrarfossi. Örstutt er í veiði í vötnunum í Svínadalnum, Eyrarvatni, Þórisstaðavatni og Geitabergsvatni.
Þetta er einstök eign sem hentað getur sem sumarhús eða sem einbýlishús til heilsársbúsetu í sveitasælunni.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is