Gimli fasteignasala logo
Opið hús:14. nóv. kl 13:00-13:30
Skráð 31. okt. 2026
Söluyfirlit

Tröllhólar 37

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
190.7 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
108.900.000 kr.
Fermetraverð
571.054 kr./m2
Fasteignamat
107.950.000 kr.
Brunabótamat
98.150.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Eigandi, Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2006
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Tröllhólar 37, 800 Selfoss, bjart og vel skipulagt 191fm einbýli á góðri hornlóð í Hólahverfi á Selfossi. Fimm svefnherbergi, nýlega endurnýjað eldhús og bað, sólríkrík verönd og heitur pottur. Bílskúr er 39fm með góðri vinnuaðstöðu og tengi fyrir rafhleðslu. góð staðsetning þar sem leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli eru í stuttu göngufæri. Hleðsla fyrir rafmagnsbíl og öryggiskerfi.

-Fimm góð svefnherbergi.
-Nýlegt eldhús með vandaðri innréttingu, quarts á borðum og gæða tækjum.
-Nýlegt baðherbergi með þreplausri sturtu, vönduðum innréttingum og blöndunartækjum.
-Auka baðherbergi inn af forstofu.
-Möguleiki á að breyta bílskúr í auka íbúð.
-Fjögur bílastæði og tengi fyrir rafhleðslu.


Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Lýsing:  Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp. Úr forstofu er gengið inn á gang með baðherbergi og herbergi sem skv. teikningum er skráð geymsla. Af gangi er innangengt í bílskúr þar sem búið er að setja upp góða vinnu -og þvottaaðstöðu, gott geymsluloft er aðgengilegt úr bílskúr, rafmagnhurð auk útihurðar.
Úr forstofu er gengið inn í sjónvarpshol. Úr holi eru fjögur svefnherbergi og baðherbergi, stofa, borðstofa og eldhús eru í alrými á hægri hönd. Hjónaherbergi er með glugga á tvo vegu og góðum fataskápum. Svefnherbergi I og II eru rúmgóð með tvöföldum skápum. Svefnherbergi III er stór og bjart, aukin lofthæð, góður fataskápur og aðgengi í garð. Baðherbergi er nýlega endurnýjað, þreplaust sturta, Kvikk innréttingar, upphengt salerni og Vola blöndunartæki.
Eldhús var allt endurnýjað 2020 í vönduðum og tímalausum stíl. Kvikk innrétting með quarts steini frá Granítsmiðjunni. Innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, span helluborð í eyju með innbyggðri viftu og bakaraofni í vinnuhæð.  Stofan og borðstofa eru björt og rúmgóð með hurð út á sólríka verönd. Upptekin loft eru í hluta eigninni og innfelld lýsing, öll rými eru flísalögð og gólfhiti er í allri eigninni. Húsið stendur á gróinni 723fm hornlóð með veglegum palli, heitum potti og stóru bílaplani. Möguleiki er á að leggja húsbíl eða hjólhýsi.

Öryggiskerfi tengt Securitas
Nýlegur varmaskiptir

Húsið er á einni hæð, timburhús klætt aluzink klæðningu og harðvið. Gluggar og hurðir eru úr harðvið. Íbúðarrými er 139fm, herbergi (skráð geymsla) og bað inn af forstofu er 12fm og bílskúr 39fm, samtals 191fm á 726fm lóð. Búið er að breyta skipulagi hússins nokkuð, færa þvottaaðstöðu í bílskúr, bæta við svefnherbergi og breyta skipulagi á alrými.
 
Eignin Tröllhólar 37 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-0122, birt stærð 190.7 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse  í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin