Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Falleg ný lúxus íbúð á 3ju hæð í miðbæ Hafnarfjarðar. Vel skipulögð 73,4 m² 2ja herbergja íbúð. Þessari íbúð fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu. Lyfta gengur beint niður í verslanamiðstöðina Fjörð þar sem eru veitingahús, bakarí og verslanir. Eitt glæsilegasta fjölbýli Hafnarfjarðar
Forstofa með góðum fataskápum.
Stórt alrými þar með eldhúsi og stofu, stórir gólfsíðir gluggar og vandað parket á gólfi.
Kvartz borðplatan er í eldhúsi Innbyggð uppþvottavél og ískápur er í íbúðinni ásamt örbylgjuofni, spanhelluborði og ofn, allt frá AEG, helluborðið er staðsett í eldhúseyju og er það með innbyggðum gufugleypi frá Elica. Öll eldhústæki, vaskar og blöndunartæki eru svört.
Yfirbyggðar svalir með flísalögðu gólfi eru út frá stofu. Frá stofu sér niður á höfnina.
Stórt svefnherbergi með miklu skápaplássi, parketlögðu gólfi og stórum gólfsíðum glugga.
Vel innréttað baðherbergi með vönduðum innréttingum og innfelldum tækjum, kvartz borðplata og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherbergi.
Geymsla í kjallara
Staðsetning: Örstutt göngufæri er í útivistarsvæðið í Hellisgerði og skemmtilegar gönguleiðir eru handan götunnar með sjónum. Hátíðin Í Hjarta Hafnarfjarðar og Jólaþorpið eru haldnar í miðbænum.
Stæði í bílageyslu fylgir þessari íbúð.
Íbúðin er í nýrri viðbyggingu við Fjörð sem samanstendur af verslunarýmum á jarðhæð sem tengist við núverandi verslunarmiðstöð, bókasafni á annarri hæð sem einnig tengist inn í núverandi verslunarmiðstöð, Frá Strandgötunni upplifum við bygginguna sem fjögurra hæða sem fellur vel að núverandi götumynd. Á milli hótelsins og íbúðanna er þakgarður á annarri hæð, Inngangar í húsið eru bæði frá Strandgötu og Fjarðargötu.
Innréttingar:
Sérsmíðaðar innréttingar með reyktu eikarútliti frá Skin, úr hágæða lamineruðu efni, frá VOKE III. Lamineraðar innréttingar eru frábær lausn fyrir nútíma heimili – þær sameina stílhreint útlit, mikla endingu og auðvelda umhirðu. Yfirborðið er klætt með slitsterku efni sem þolir bæði hita, raka og daglega notkun. Ljós kvartz-platan sker sig úr með lifandi áferð þar sem ljós drappaður grunnliturinn er brotinn upp með ljósgráum og fíngerðum steinefniseindum sem gefa yfirborðinu dýpt og náttúrulega hreyfingu. Kvartz borðplatan er bæði í eldhúsi og á baðherbergi.
Innbyggð uppþvottavél og ískápur er í íbúðunum ásamt örbylgjuofni, spanhelluborði og ofn, allt frá AEG, helluborðið er staðsett í eldhúseyju og er það með innbyggðum gufugleypi og er frá Elica. Öll sýnileg eldhústæki, vaskar og blöndunartæki eru svört.
Baðherbergin eru innréttuð í sama hlýlega stíl og eldhúsið, með reyktri eik. Gólf og veggir eru flísalagðir með 60×120 cm ljósum flísum (lóðrétt). Þá eru tvennskonar áferð á flísunum, en einn veggur sker sig úr með grófri áferð á flísum sem gefur baðherberginu frekari dýpt.
Innfelldur speglaskápur fyrir ofan vaskinn þar sem hönnun og notagildi fara saman.
Gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara inni á baðherberginu.
Þetta er björt og falleg horn íbúð með stórum gluggum og þakverönd. Glæsilega innréttuð eign með aðgengi að flottri verslanamiðstöð .
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is .
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...