Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason Löggiltur fasteignasali sími 899 9787 kynna: Stórglæsileg 141,1 m² endaíbúð á 6.hæð. Tvö svefnherbergi og stórar stofur. Stæði í bílageymslu með rafhleðslu.Tvennar svalir og eru aðrar með gler lokun. Einstaklega snyrtileg og heilleg eign.
Nánari lýsing: Forstofa með parketlögðu gólfi og miklu skápaplássi í skápum er ná að lofti. Stofa og borðstofa í stóru alrými með fallegu vönduðu parketi á gólfi og gluggum á báðum hliðum. Eldhúsið er með fallegri hvítri/viðar innréttingu með miklu skápaplássi. Eyja með helluborði og háfi yfir. Skápar eru í eyjunni. Uppþvottavél og bakarofn í vinnuhæð. Innfeld lýsing í lofti og tveir bjartir gluggar. Borðstofa við hlið eldhússins Herbergi 1 mjög rúmgott með parketlögðu gólfi og fataskápum er ná að lofti. Herbergi 2 stórt og fallegt hjónaherbergi með gluggum á þrjá vegu og fataskápum með með miklu geymsluplássi og parketi á gólfi. Baðherbergi, Mjög rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Gler sturtuskjól og slétt aðgengi í sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Falleg hvít innrétting við vask og góðir skápar. Svalir I á norðurhlið út frá stofu Svalir II stórar suður svalir með gler svalalokun og snú að bakgarði. Þvottaherbergi er við hlið eldhúss, skolvaskur og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl sem er vel staðsett fylgir íbúðinni í lokuðum kjallara. Snyrtilegur bílakjallari. Geymsla: Er 11,4 m² að stærð og með mikilli loft hæð, staðsett á geymslugangi á jarðhæðinni . Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í sameign hússins.
Íbúðin er virkilega falleg með vönduðum innréttingum og eldhústækjum. Vandað viðarparket á gólfum. Hurðir og þeir skápar sem eru með viðarspón eru með lárétt lögðum spón. Mynddyrasími er í íbúð ásamt loftræstikerfi. Sameign er mjög snyrtileg og vel um gengin með lyklalausu aðgengi á sameignarhurðum. Íbúðin er sérlega heilleg og vel um gengin og öllin hin fallegasta.
Þetta er sérlega falleg og rúmgóð eign með frábæru skipulagi og vönduð í alla staði.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, Löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is
Húsið og frágangur: Húsið er hannað af Kanon arkitektum, með nútímalegu skipulagi og vönduðum frágangi. Efla sá um verkfræðihönnun og Lumex um lýsingarhönnun. Timbur/álgluggar eru frá Gluggasmiðjunni. Innréttingar eru sérsmíðaðar með ljúflokunarbúnaði. Skápar eru í anddyri og herbergjum. Innréttingar eru með láréttum eikarspóni eða sprautulökkuðum flötum. Á baðherbergi eru flísar í hólf og gólf, glerskilrúm í sturtu og innbyggt upphengt salerni. Mánatún 7 er virkilega vel staðsett í hjarta höfuðborgarinnar. Tveir inngangar eru inn í húsið (sunnan og norðan megin). Gangstétt með snjóbræðslu og næg bílastæði við húsið. Á sameiginlegri lóð er leiksvæði með leiktækjum, setbekkjum og gróðurkerjum. Stutt er í alla þjónustu við Borgartún og Nóatún, afþreyingu og iðandi atvinnulífið. Laugardalurinn með allri sinni útivist og fallegum gönguleiðum í næsta nágrenni
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við? Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.