TIL LEIGU - Björt og rúmgóð hæð við Kvisthaga í Vesturbæ Reykjavíkur. Laus strax.
Falleg, vel skipulögð og mikið endurnýjuð fimm herbergja efri hæð á frábærum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.
Hæðin samanstendur af tveimur samliggjandi stofum, þremur herbergjum, eldhúsi og baðherbergi. Íbúðin er með tvennum svölum, stórum garði og sjávarútsýni. Örstutt í alla helstu þjónustu, meðal annars skóla, leikskóla, sundlaug og matvörubúð.
Eignin er laus til afhendingar strax og verður eingöngu leigð reglusömum og reyklausum aðilum. Farið er fram á 3ja mánaða bankatryggingu leigusamnings.
Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson löggiltur fasteignasali í síma 698-1164, eða í tölvupósti, dr@gimli.is