Gimli fasteignasala logo
Opið hús:11. júní kl 12:00-12:30
Skráð 5. júní 2026
Söluyfirlit

Hraunbær 182-186

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
68.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.900.000 kr.
Fermetraverð
870.640 kr./m2
Fasteignamat
54.050.000 kr.
Brunabótamat
38.750.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Eigandi, Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1968
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2045324
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
7
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta, ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað, virðist í lagi
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Vestursvalir
Lóð
0,73
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Hraunbær 182-186, 110 Reykjavík. Björt, stílhrein og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Hraunbæ 182-186 í Árbæ. Bjart og rúmgott alrými með stórum vestursvölum, hjónaherbergi með góðum fataskáp, barnaherbergi, gott endurnýjað bað með sturtu, sérmerkt bílastæði, geymsla, hleðslustöðvar. Sameiginlegur garður með leiktækjum. Örstutt í verslun, þjónustu og skemmtilegar göngu- og hjólaleiðir. Eign sem vert er að skoða

Nánari upplýsingar veitir:
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Íbúðin er að mestu endurnýjuð, harðparket er á öllum gólfum nema baði og forstofu sem eru flísalögð.
Komið er inn í forstofu af svölum, úr forstofu er gengið inn í bjart alrými, stofa, borðstofa og eldhús, útgengt á stórar vestursvalir.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir. Upphengt salerni, Sturtuklefi og góð vaskinnrétting með speglaskáp.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp. 
Herbergi II er með góðum fataskáp.
Geymsla 5,6fm er í sameign
Í sameign er stórt og gott þvottahús ásamt þurrkaðstöðu.
Falleg lóð er við húsið og næg bílastæði.

Endurnýjun og viðhald skv. upplýsingum frá seljanda.
- 2025 Íbúð máluð
- 2025 Rafmagn endurnýjað, ný rafmagnstafla.
- 2024 Loft tekin í gegn þar sem hraun var slípað niður og loft sparslað, grunnað og málað. 
- 2024 Hurðarkarmar og gluggakarmar að innan teknir í gegn og lakkað.
- 2024 Hurðir á herbergjum og anddyri lagaðar, grunnaðar og lakkaðar.
- 2022 Alrými málað
- 2017 Eldhús endurnýjað ásamt öllum tækjum.
- 2017 Baðherbergi endurnýjað
-2017 Nýjar vatnslagnir á baði og eldhúsi
-2017 skipt um innlagnaefni rafmagns.

Húsið hefur gengist undir mikið og gott viðhald undanfarin ár og eru þær framkvæmdir að fullu greiddar

Eignin Hraunbær 182-186 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-5324, birt stærð 68.8 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-07, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur gudmunda@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hofsvallagata 21
101 Reykjavík
61.5 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
1,007 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dalbraut 1
105 Reykjavík
85.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
667 þ.kr./m2
57.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Týsgata 1
101 Reykjavík
52.2 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
1,148 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin