Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Frábæra 2ja herbergja nýlega íbúð við Hringhamar 25 í Hamarsnesi, Hafnarfirði.Um er að ræða íbúð á 5 hæð í lyftuhúsi byggt 2025 með fallegu útsýni og sérmerktu bílastæði.
Eignin skiptist í forstofu, hjónaherbergi, eldhús/stofu í alrými, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, sérgeymslu í sameign og sérmerktu bílastæði.Bílastæðin eru á tveimur hæðum og er hitalögn fyrir snjóbræðslu í efra planinu. Möguleiki er að setja rafbílahleðslu við bílastæðið, þ.
e. ídráttarlagnir í lóð eru til staðar.
Afhendin við kaupsamnig.Eignin Hringhamar 25 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-8188, birt stærð 66,3fm . Nánar tiltekið eign merkt 05-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Stæði í bílageymslu 04E59
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isNÁNARI LÝSING:Forstofa: með góðum forstofuskáp og harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott með góðum skápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús/stofa: í alrými með fallegri eldhúsinnréttingu með hvítum efri skápum og dökkum neðri skápum, spanhelluborði bakaraofni og viftu frá AEG, tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp (getur fylgt) og harðparketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á mjög rúmgóðar svalir 12,6 fm með sandblásnu gleri og fallegu útsýni.
Baðherbergi: með flísum á gólfi og hluta til á veggjum, fallegri innréttingu frá Arens (Ormsson) með handlaug og speglaskáp fyrir ofan, walk in sturtu með glerþili, upphendu wc og handklæðaofni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: sérgeymsla í sameign.
Sameign: rúmgóð vagna- og hjólageymsla er í sameign.
Bílastæði: sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Niðurlag:Staðsetning hverfisins er góð með tilliti til útivistar á fallegum útivistarsvæðum eins og til dæmis Ástjörn, Helgafelli og Hvaleyrarvatni. Þá er stutt í íþróttaiðkun Hauka á Ásvöllum og grunn- og leikskóli eru mjög nálægt.
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala