GIMLI fasteignasala og Halla Unnur Helgadóttir fasteignasali kynna: Vallargata 34, 245 Sandgerði. Einstaklega vel skipulagt 120,9 fm einbýlishús á einni hæð ásamt sérstæðum bílskúr, 56,4 fm, alls 177,3 fm.
Skipulag íbúðar: anddyri, gestasnyrting, stofa/borðstofa, eldhús með borðkrók, 4 svefnherbergi, þvottahús og geymsla.
Skipulag bílskúrs: opið rými og 2 geymslur. Húsið að innan er mikið til í upprunalegu ástandi. Að utan hefur húsið fengið ágætt viðhald, þó kominn tími á þakkant (sjónskoðun)
Eignin Vallargata 34 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 209-5270, birt stærð 177.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Halla Unnur Helgadóttir í síma 6594044, eða halla@gimli.is og/eða hjá Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 773-7126, eða elinrosa@gimli.is
NÁNARI LÝSING:Anddyri: flísar á gólfi, fataskápur.
Gestasnyrting: er innaf anddyri, rúmgóð og með glugga, flísar á gólfi.
Forstofuherbergi: er innaf anddyri, ágætt herbergi, dúkur á gólfi. (svefnherbergi #2)
Stofa/borðstofa: í einu samfelldu rými, rúmgott, opið rými að borðkrók og svefnherbergisgangi, eikarparket á gólfi.
Eldhús/borðkrókur: upprunaleg viðarfulninga-innrétting er í eldhúsinu sem og tæki, borðkrókur við glugga, flísar á gólfi.
Þvottahús: er innaf eldhúsi, flísar á gólfi, innréttingar á 2 veggjum og gluggi, útgangur.
Inntaksrými/geymsla: innaf þvottahúsi, gluggi, málað gólf.
Aðalsvefnherbergi #1: Harðparket á gólfi, upphafl. fataskápur.
Svefnherbergi #3: Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi #4: Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: rúmgott, með baðkari og sér sturtu, innrétting með vaski og gluggi, flísar á gólfi
Bílskúr: Stór bílskúr, bílskúrshurð ásamt inngönguhurð, gluggar á einni hlið og útg. á pall úr fjærenda.
Garður: lóðin er stór og vel gróin. Aðkeyrsla að bílskúr er hellulögð og á hluta lóðar, aðliggjandi að aðkeyrslu, er svæði með möl, sem hentar vel til að staðsetja kerru, tjaldvagn o.þ.u.l. Hluti baklóðar hefur verið afgirtur og honum skipt í tvennt, annars vegar svæði til ræktunar og hins vegar aflokaðan pall með heitum potti (ástand ekki vitað)
Eigandi eignarinnar hefur ekki búið í henni og getur því ekki upplýst að um ástand einstakra hluta. Áhugasamir eru hvattir til að skoða eignina vel með fagmönnum.
Niðurlag: Frábærlega vel staðsett og skipulagt fjölskylduhús, örstutt í grunnskóla.Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 659-4044, tölvupóstur halla@gimli.is eða Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 773-7126, tölvupóstur elinrosa@gimli.is
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala