Gimli fasteignasala logo
Skráð 12. júní 2026
Söluyfirlit

Laugarbraut 3

FjölbýlishúsSuðurland/Laugarvatn-840
58.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
39.900.000 kr.
Fermetraverð
679.727 kr./m2
Fasteignamat
31.800.000 kr.
Brunabótamat
35.300.000 kr.
Byggt 2000
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2249875
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Lóð
4,56
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Gimli og Sigþór Bragason löggiltur fasteignasali kynnir: Björt og falleg 58,7 fm 2ja herbergja á 2.hæð. Steinsteypt hús sem er klætt að utan og viðhaldslítið. Sér inngangur í átta íbúða húsi. Einstakt útsýni er frá íbúðinni.

Gengið í forstofu um sér inngang, fataskápur er nær að lofti.
Hol miðsvæðis í eigninni.
Eitt gott svefnherbergi með skápum og tveimur gluggum.
Baðherbergi með sturtu og  innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Stofa og eldhús eru í samliggjandi rými., gengt út á sólríkar suðursvalir úr stofunni með útsýni yfir Laugarvatn.
Geymsla er innan íbúðar,
Svalir, góðar og sólríkar suður svalir með fallegri viðarflísum á svalargólfi.

Sameiginlegt þvottahús/þurrkherbergi sem og hjóla og vagnageymsla eru á 1. hæð hússins.

Húsið er viðhaldslítið og er klætt álklæðningu og er einangrað að utan, handrið og gluggar eru einnig úr áli.

Flott eign á einum fallegasta og fjölsóttasta stað landsins við Gullna hringinn.  

Öll helsta grunnþjónusta og fjölmargir afþreyringarmöguleikar eru til staðar á Laugarvatni: 
Verslun, grunnskóli, leikskóli, menntaskóli, kaffihús og veitingar, sundlaug, íþróttahús, Fontanaspa og ýmsir aðrir afþreyingarmöguleikar. Tjaldsvæði, farfuglaheimili, bændagisting, hótel og veitingastaðir. Hægt að leigja bát og sigla á vatninu, veiða í ám og vötnum eða bregða sér í golf eða sund. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og boðið er upp á hellaskoðun, kanóferðir og útiafþreyingu fyrir hópa. Fjölbreytt fuglalíf er í skóginum og við vatnið og fallegar gönguleiðir. Laugarvatnsfjall býður upp á víðáttumikið útsýni. Upp frá Miðdal, um 3 km frá Laugarvatni, er vinsæl gönguleið upp að Gullkistu.

Virkilega góð eign á frábærum stað á Suðurlandi.

Allar upplýsingar og bókun á skoðun veitir Sigþór Bragason lögg.fasteignasali í síma 899 9787 eða sb@gimli.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is

 
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 43 ára starfsafmæli á árinu 2025. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin