Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason lögg.fasteignasali sími 899 9787 kynna: Björt og glæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 2.hæð. Eign sem er nánast öll endurnýjuð á síðustu árum að innan sem utan.
Nánari lýsing
Stigagangur, gengið upp einar tröppur í björtum og snyrtilegum stigagangi
Forstofa, rúmgóð með vínilparketi
Herbergi 1 stórt hjónaherbergi með nýlegum fataskápum og hurð út á svalir.
Herbergi 2 barnaherbergi er með parketi á gólfi.
Stofan er mjög rúmgóð miðsvæðis í eigninni og er gengt út á stórar suðursvalir frá henni.Mikið útsýni er frá stofunni yfr Rauðavatn og til Esjunnar
Eldhúsið er með nýlegri innréttingu með góðu skápaplássi og stórum vinnuborðum, þrír gluggar með óheftu útsýni yfir Heiðmörk og til Bláfjalla.
Baðherbergið er endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, innrétting, handklæðaofn og bæði baðkar og rúmgóð sturta.
Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, hillur á vegg,
Svalir stórar svalir með útgengi frá hjónaherbergi og stofu.
Lóðin er í gróin og snyrtileg.
Bílastæði eru á lóð.
Útsýni, íbúðin er horníbúð og því sérlega björt og með einstöku útsýni.
Húsið hefur fengið reglulegt viðhald og íbúðin nánast öll endurnýjuð, að sögn seljanda hefur eftirfarandi verið gert síðustu ár:
Að innan:
2023 Nýtt vínylparket frá Harðviðarvali. Nýjar innihurðar frá Harðviðarvali.
Nýtt eldhús frá Kvik. Skipt um alla rofa og tengla. Dregið í nýtt rafmagn í eldhúsi, bætt við öryggistöflu fyrir bakaraofn og helluborð. Öryggi í töflu stækkuð.
Skipt um öll ljós í lofti og Íbúð máluð. Nýir fataskápar frá IKEA í svefnherbergi og forstofu. Sérsniðnar rúllugardínur í alla glugga.
Ný IKEA innrétting á baðherbergi og handklæðaofn á baðherbergi.
Gluggar pússaðir og málaðir að innan.
2025: Baðherbergi flísalagt, nýtt baðkar, búin til walk-in sturta og sett nýtt salerni.
Að utan:
2019 og 2025 Gluggar endurnýjaðir að miklu leiti í húsinu.
2020: Endurnýjun á þaki.
Drenlagnir í kringum húsið endurnýjaðar.
Skipt um þakrennur og niðurföll frá þaki/svölum.
2020 / 2021: Múrviðgerðir og húsið málað.
Staðsetning er frábær og útsýni eins og best verður á kosið, stutt í skóla og íþróttasvæði. Og mikil þjónusta í næsta nágrenni, verslanir og veitingahús og margskonar önnur þjónusta.
Þetta sérlega falleg og vel skipulögð og björt eign með útsýni eins og best verður.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@gimli.is