Gimli fasteignasala logo
Skráð 26. ágúst 2026
Söluyfirlit

Strandgata 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
64.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
57.900.000 kr.
Fermetraverð
897.674 kr./m2
Fasteignamat
54.250.000 kr.
Brunabótamat
45.100.000 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Byggt 1967
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2354620
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
4
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna:  Strandgata 31, 220 Hafnarfjörður.
Falleg og sérlega vel staðsett 2ja herbergja íbúð á 3.hæð (304) í nýlega uppgerðu lyftuhúsi. Eignin sem er í heildina 64,5 fm að stærð skiptist í eldhús/ stofu/ borðstofu í alrými með útgengi út á suður svalir með flottu útsýni yfir miðbæinn, svefnherbergi, baðherbergi og 13,5 fm geymslu í sameign. 

NÁNARI LÝSING:
Eldhús/ stofa/ borðstofa: í opnu rými með nýlegu harðparketi á gólfi. Hvít eldhúsinnrétting og borðplata úr steini. Ísskápur og uppþvottavél fylgja. Stofan er björt og fyrir endanum á henni er útgengi á suður svalir með flottu útsýni yfir miðbæ Hafnarfjarðar.
Svefnherbergi: með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskáp. Tvær rennihurðar eru inn í svefnherbergið úr alrýminu.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, með walk in sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofni, góðri hvítri innréttingu með steinborðplötu, stórum spegli og góðri lýsingu.
Geymsla: Í kjallara er 13,5 fm sérgeymsla.
Sameign: í kjallara er hjóla- og vagnageymsla ásamt sameiginlegu þvottahúsi, þar sem hver íbúð getur verið með sína eigin þvottavél.
Við enda íbúðagangsins á þriðju hæðinni eru sameiginlegar vestur svalir. Uppi á fjórðu hæðinni eru einnig þaksvalir, sem eru sameiginlegar fyrir alla íbúa hússins og eru þær með stórkostlegu útsýni, m.a. yfir miðbæ Hafnarfjarðar. Sameign hússins er mjög snyrtileg og umgengni góð. Næg bílastæði á lóð hússins. 

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin