Gimli fasteignasala Vefsíða logo
Skráð 29. okt. 2025
Söluyfirlit

Drómundarvogur 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
80.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
871.571 kr./m2
Fasteignamat
65.800.000 kr.
Brunabótamat
48.900.000 kr.
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2511063
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
9
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Austur svalir
Lóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Kristján Gíslason kynna:  Drómundarvogur 2, sem er nýleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð í Vogabyggð með frábæru útsýni yfir smábátahöfnina hjá Snarfara og út á Elliðaárvoginn. Íbúðin er á fyrstu hæð og er 80,2 fm að stærð, að meðtalinni 8,4 fm geymslu í kjallara. Íbúðin skiptist í forstofu, gang, eldhús með eyju er í alrými með stofu/borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Svalir eru út frá stofu.
Afhending við kaupsamning.
Hægt er að bóka einkaskoðun hjá Ingu Reynis í síma 820-1903 eða inga@gimli.is


Komið er inn á gang/forstofu með stórum dökkum viðar fataskáp. Á baðherbergi eru gráar flísar á gólfi og ljósar flísar á veggjum í kringum sturtu og vask. Vegghengt salerni með innbyggðum vatnskassa, "Walk in" sturta, skúffuinnrétting undir vaski og speglaskápur fyrir ofan. Eldhús myndar fallegt alrými með stofu og borðstofu. Í eldhúsi eru dökkar viðarinnréttingar frá Nobilia. og tæki frá Electrolux þ.m.t. innbyggður kæliskápur og uppþvottavél, blástursofn, eyja með spansuðu helluborði og lofthengdur háfur. Úr stofu og borðstofu er frábært útsýni yfir smábátahöfnina og út á Elliðaárvog. Úr alrýminu er gengið út á svalirSvefnherbergið er mjög rúmgott með stórum fataskáp. Þvottaherbergi er innan íbúðar, gráar flísar á gólfi og þar inni er rafmagnstaflan.
Á öllum gólfum íbúðarinnar er fallegt harðparket, nema á baðherbergi og þvottahúsi, þar eru flísar. Baðinnrétting og fataskápar  eru frá GKS.
Húsið er byggt af ÞG verk og er staðsteypt. Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með báru- eða sléttum álklæðningum. Þá eru gluggar ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir, aðrir en steyptir, eru úr hleðslusteini.

Vogabyggð er nýlegt hverfi í Reykjavík, í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Eignin Drómundarvogur 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-1063, birt stærð 80.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-09, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.


Bókið skoðun hjá Ingu Reynis í síma 820-1903 eða inga@gimli.is og Kristján Gíslason  í síma 691-4252, eða kristjan@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Langholtsvegur 90
104 Reykjavík
105.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
692 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bríetartún 11
105 Reykjavík
68.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
985 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Gullengi 29
112 Reykjavík
86.8 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
805 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
© Copyright 2025 - Gimli fasteignasala Vefsíða
Knúið af
Fasteignaleitin