Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna: Sólvallagata 17, 101 Reykjavík, sem er björt og rúmgóð 2ja til 3ja herb. íbúð/hæð á annarri hæð í fjórbýli. Íbúðin er eina íbúðin á hæðinni og hefur verið töluvert endurnýjuð á liðnum árum. Hún samanstendur af stóru eldhúsi, stofu, þar sem gengt er út á suðursvalir, rúmgóðu svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og svo skrifstofu/herbergi sem er gengið inn í frammi á stigapalli. Auk þess er sameign í kjallara þar sem er bæði geymsla og þvottahús.
Eignin Sólvallagata 17 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 200-3906, birt stærð 79.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir Daði Runólfsson í síma 698-1164, eða dr@gimli.isNÁNARI LÝSING: Húsið Sólvallagata 17, er kjallari, tvær hæðir og ris. Í húsinu eru fjórar íbúðir, ein á hverri hæð. Sameiginlegur inngangur er með öðrum íbúðum í húsinu. Á stigapalli annarar hæðar er skrifstofa/herbergi vinstra megin en gengið er inn í íbúðina hægra megin á stigapallinum. Komið er inn í
anddyri/forstofu með innbyggðum fataskápum og parketi á gólfi, en vandað parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi sem er flísalagt.
Eldhús er stórt og bjart með gluggum á tvo vegu. Þar er stór gaseldavél með rafmagnsofni og háfur þar fyrir ofan, tvöfaldur ísskápur (sem fylgir með) og góð innrétting með tengi fyrir uppþvottavél sem er í dag nýtt fyrir þvottavél. Borðplata er úr steini. Pláss er fyrir eldhús- eða borðstofuborð í eldhúsinu. Opið er á milli stofu og eldhúss. Í
stofu er fallegur gas-arinn, gluggar á tvo vegu og úr stofu er gengt út á suður svalir, sem vísa út yfir garðinn.
Svefnherbergið er með gluggum á tvo vegu og hvítum fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með hita í gólfi og opnanlegum glugga. Þar er vegghengt salerni og fallegt sturtubaðkar með sléttum botni, hallandi baki, sturtu og gleri. Góð innrétting undir vaski og borðplata úr steini. Gengið er inní
skrifstofu/herbergi af stigapalli, gengt inngangi íbúðarinnar. Herbergið er með innbyggðum skápum og parket á gólfi. Í íbúðinni eru fallegir loftlistar og góð lofthæð, ca 2,65m.
Sameign er í kjallara. Þar er sameiginlegt þvottahús og geymslur.
Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð á undanförnum ca 10 árum. Bæði eldhús og baðherbergi hafa verið endurnýjuð en einnig hefur rafmgan að mestu verið endurnýjað, sem og ofnalagnir auk þess sem sett var vandað parket á öll gólf nema baðherbergi. Þá er búið að skipta um gler og flesta glugga íbúðar. Sett var dren við húsið 2016.
Húsið Sólvallagata 17 var byggt 1926 og er því 100 ára í ár. Nýlega er búið að breyta lögum um friðun húsa þannig að "Öll hús og mannvirki, sem byggð voru árið 1923 eða fyrr, eru friðuð." Sólvallagata 17 er því ekki friðað skv fyrrgreindum lögum. Húsið stendur á
416,7 fm eignarlóð og er garðurinn fallegur og gróinn. Garðurinn er í sameign íbúðanna þriggja, sem eru á hæðum og í risi.
Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 698-1164, tölvupóstur dr@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala