Lilja Hrafnberg

Löggiltur fasteigna- og skipasali, Viðskiptafræðingur

Employee photo

Lilja Hrafnberg

Lilja hefur víðtæka og fjölbreytta reynslu en utan þess að vera löggiltur fasteignasali þá er hún einnig viðurkenndur bókari, menntaður viðskiptafræðingur og með meistaragráðu í fjármálum. Hún hóf störf hjá Gimli árið 2018, en fyrir það hafði hún starfað í rúman áratug í fjármálageiranum og þá aðallega við fjármögnun til fyrirtækja með áherslu á byggingarverkefni.

Áhugamálin eru augljóslega allt sem tengist fasteignum, s.s. hönnun og endurbætur, en Lilja hefur einnig afar gaman af ýmiss konar útivist og hestamennsku.

„Ég legg mig fram um að upplifun viðskiptavina minna bæði við kaup og sölu fasteigna sé jákvæð og ánægjuleg, að ferlið sé þeim eins einfalt og áreynslulaust og mögulegt er. Ég legg ríka áherslu á góð samskipti og gott upplýsingaflæði í ferlinu. Upplifun viðskiptavinarsins á í mínum huga að snúast um árangursríkt samstarf sem allir njóta góðs af, bæði kaupendur og seljendur.“


Eignarlisti