Herdís Valb. Hölludóttir
Löggiltur Fasteignasali og Lögfræðingur
Herdís Valb. Hölludóttir
Herdís útskrifaðist úr Lagadeild Háskóla Íslands árið 2014 og hlaut löggildingu til fasteigna-og skipasala tveimur árum síðar. Allar stundir síðan hefur hún starfað við sölu fasteigna. Herdís situr einnig í stjórn Félags fasteignasala.
Utan skrifstofunnar er Herdís mikil fjölskyldumanneskja og félagsvera, spilar bridge og stundar skútusiglingar.
„Ég er hörkudugleg, heiðarleg og legg mikinn metnað í allt sem ég tek mér fyrir hendur. Umfram allt, þá hef hagsmuni viðskiptavina minna ávallt að leiðarljósi.“