Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Eigandi / Löggiltur fasteigna- og skipasali / Þjóðfræðingur

Employee photo

Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse

Guðmunda, eigandi Gimli fasteignasölu, er þjóðfræðingur að mennt og lauk hún BA-prófi í þjóðfræði frá Háskóla Íslands árið 2008, en vorið 2022 lauk hún löggildingu í fasteigna- og skipasölu. Hún er reynslumikill heimsborgari og hefur búið og starfað bæði í Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Nú á Ísland hug hennar og hjarta og nýtur hún þess að elda góðan mat og dekra við eiginmann sinn og börnin sín fjögur.
„Ég legg mikinn metnað í starf mitt sem fasteignasali og nálgast hverja sölu með faglegri og persónulegri þjónustu. Það er draumur að fá að vinna við áhugamálið sitt en auk fasteigna, þá eru arkitektúr og hönnun mín helstu áhugamál.“


Eignarlisti