GIMLI Í SAMSTARF VIÐ EIGNAMYNDBÖND

05.06.2024

GIMLI Í SAMSTARF VIÐ EIGNAMYNDBÖND

Ekkert er okkur mikilvægara en ánægja viðskiptavina og því leggjum við ávallt mikið upp úr góðri og traustri þjónustu. Fyrr á þessu ári tókum við hjá Gimli fasteignasölu stórt skref í átt að bættu þjónustustigi við viðskiptavini okkar með samstarfi við Kristján Orra, eiganda fyrirtækisins Eignamyndbönd. Kristján sérhæfir sig í ljósmyndun á fasteignum, auk myndbandsgerðar, og hefur hann nú þegar skapað sér góðan sess á markaðnum með fagmennsku og góðri þjónustu. Myndir og myndbönd gegna lykilhlutverki í sölu fasteigna og skapa aukin tækifæri í auglýsingu og markaðsetningu á eignum. Við hjá Gimli erum hæstánægð með okkar samstarf við Eignamyndbönd en ánægðust erum við með viðbrögð viðskiptavina okkar við þessari nýju þjónustu.