Gimli fasteignasala logo
Skráð 16. jan. 2026
Söluyfirlit

Álfhólsvegur 80

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
217.2 m2
7 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
128.400.000 kr.
Fermetraverð
591.160 kr./m2
Fasteignamat
117.750.000 kr.
Brunabótamat
86.420.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Eigandi, Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1963
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2058192
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
búið að skipta um
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
búið að skipta um járn á þaki
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
vestur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason kynna:  Fjölskylduvæna og rúmgóða 217 fm eign á eftirsóttum stað við Álfhólsveg 80 í austurbæ Kópavogs.
Húsið er tvíbýlishús á þremur hæðum og klætt að utan með steniklæðningu og þar af leiðandi viðhaldslétt.
Eignin Álfhólsvegur 80 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-8192, birt stærð 217.2 fm, íbúðarrými er skráð 186,8 fm og bílskúr 30,4 fm.
Nýlega hefur verið skipt um járn á þaki hússins.
Lóðin er mjög skjólgóð og með veröndum, heitum potti og skjólveggjum. Um er að ræða alla eignina að undanskildri 72 fm íbúð á jarðhæð sem snýr í norður í átt að Álfhólsveginum. 
Aðalhæðin skiptist í forstofu, rúmgóð og björt stofa með glæsilegu útsýni og útgengi út á suðurverönd. Rúmgótt eldhús með góðri innréttingu og tækjum, baðherbergi og tvö svefnherbergi.
Risið skiptist í tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi sem nýta mætti sem herbergi með því að stúka það af og geymsla. 
Útgengi er út á stóra timburverönd með skjólveggjum úr herberginu sem er innaf stofunni.
Jarðhæðin skiptist í eitt herbergi, þvottahús og baðherbergi.

NÁNARI LÝSING:
Aðalhæð.
Flísalögð forstofa með fatahengi.

Eldhús em er mjög rúmgott með endurnýjaðri innréttingu, borðkrók og útgengi út á lóð. 
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi. Góðri lofthæð, og glæsilegu útsýni. Útgengi út á vesturverönd sem er yfir bílskúrnum.
Svefnherbergi hefur verið stúkað af innaf stofunni og hæglega má taka það niður og sameina stofunni þar sem að parket er undir veggnum sem aðskilur herbergi og stofuna.
Herbergi sem er ágætlega rúmgott og fataherbergi.
Baðherbergið er flísalagt og hefur verið endurnýjað. Innrétting á baði. 
Rishæð.
Þar eru tvö svefnherbergi ásamt sjónvarpsherbergi sem nýta mætti sem svefnherbergi.
Á rishæðinni er einnig snyrting og geymsla innaf henni.
Jarðhæð.
Á jarðhæðinni eru eitt svefnherbergi, þvottahús með innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð og gott flísalagt baðherbergi með sturtu. Litlir opnanlegir gluggar eru á öllum rýmum jarðhæðar.
Harðparket er á flestum gólfum eignarinnar.
Lóðin er vel gróin með veröndum. Skipting lóðar er skýr milli eignarhluta hússins.

Bílskúr er með heitu og köldu vatni. Innréttaður útiskúr er yfir hluta bílskúrs.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum ásamt því sem að skipulagi eignarinnar hefur verið breytt.

Að sögn eigenda er búið að skipta um skólplögn frá húsi og út í götu.
Lagt er fyrir hleðslustöð út á bílaplan. Fjögur bílastæði eru á lóðinni.
Eignin Álfhólsvegur 80 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-8192, birt stærð 217.2 fm, þar af er bílskúrinn 30.4 fm. 


Niðurlag: Álfhólsvegur 80 er vel skipulögð fjölskyldueign með möguleika á 6 svefnherbergjum.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður H Tryggvason sölustjóri, í síma 8965221, tölvupóstur bardur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Byggt 1970
3 m2
Fasteignanúmer
2058192
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
9.920.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin