Gimli fasteignasala logo
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 6. okt. 2026
Söluyfirlit

Brekkusmári 3

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
206.9 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
177.900.000 kr.
Fermetraverð
859.836 kr./m2
Fasteignamat
145.250.000 kr.
Brunabótamat
118.050.000 kr.
Byggt 1995
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2228551
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala kynnir fallegt og mjög vel um gengið raðhús á 2 hæðum við Brekkusmára 3 í Kópavogi.
Húsið stendur á einstökum stað með óhindrað útsýni þar sem sést til sjávar og fjalla.
Eignin Brekkusmári 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 222-8551, birt stærð 206.9 fm, þar af er stærð bílskúrs 32 fm. 
Bókið skoðun hjá Bárður H Tryggvasyni í síma 8965221, eða bardur@gimli.is.


Efri hæð.
Forstofa með góðum skáp.
Eldhús með vandaðri innréttingu og borðkrók. Útgengi úr eldhúsi út á góðan sólpall í suður.
Rúmgóð stofa og borðstofa með glæsilegu útsýni og útgengi út á norðvestur svalir.
Sjónvarpsstofa við hlið stofu með glæsilegu útsýni.
Baðherbergi flísalagt með sturtuklefa og góðum skáp.
Lítið mál er stúka af herbergi á efri hæðinni.
Flísar eru á forstofu og eldhúsi. Parket á stofum.
Aukin lofthæð er á stærstum hluta efri hæðar og innbyggð lýsing í loftum.

Stiginn milli hæða er steyptur og parketlagður.
Neðri hæð.
Hol sem nýta má sem sjónvarpshol.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi með skápum.
Rúmgott baðherbergi sem er flísalagt og með baðkari og sturtuklefa, góð innrétting á baði og gott skápapláss.
Þvottahúsið er sérlega rúmgott með góðri innréttingu.
Útgengi er af efri hæð út á timburpall í norðvestur.
Parket er á gólfum neðri hæðar.
Hellulagt bílastæði með hitalögn.
Garðurinn er ekki stór og auðveldur í hirðu.


Niðurlag: Fallegt og vel byggt 206,9 fm raðhús á einstökum útsýnisstað og staðsett í göngufæri við Grunnskóla, glæsilega íþróttaðstöðu Breiðalbliks, verslanir og flesta þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður H Tryggason, í síma 8965221 tölvupóstur bardur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Laufbrekka 7
200 Kópavogur
229,7 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
524
718 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin