Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Frábært raðhús á einni hæð við lítinn botnlanga í grónu hverfi miðsvæðis í Hveragerð.
Um er að ræða 4ra herbergja miðju raðhús með mikilli lofthæð tveimur baðherbergjum og geymslulofti.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, hjónasvíta með baðherbergi og fataherbergi inn af, tvö barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Möguleiki er á að bæta við fjórða svefnherberginu. Timburverönd er framan og aftan við húsið, tvö bílastæði fyrir framan fylgja eigninni, möguleiki á að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíl.
Gólfhiti er í allri eigninni.
Gólfefni: Harðparket er á anddyri, alrými, svefnherbergjum, gangi og fataherbergi. Flísar eru á baðherbergjum og þvottahúsi. Innbyggð lýsing er í anddyri, gangi og alrými. Húsið er staðsteypt á einni hæð. Veggir hússins eru klæddir að utan með lerkiklæðningu svart málaðri með Kjörvara Ibenholt og ljósgrárri Alpolic álklæðningu.
Þak er léttbyggt, einhalla timburþak með ásoðnum Protan þakdúk. Þelamörk 47C stendur í fjögurra húsa raðhúsalengju, næst innsta hús við lítinn botnlanga.
Laus við kaupsamning.Eignin Þelamörk 47 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 251-5854, birt stærð 129.0 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða
gimli@gimli.isNánari lýsing:Anddyri: með harðparketi, þaðan er gengið inn í þvottahús/geymslu og alrými. Lúga með fellistiga er upp á loft frá anddyri.
Stofa/borðstofa: er í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi með mikilli lofthæð. Útgengt er úr stofuhluta á timburverönd til austurs með skjólvegg.
Eldhús: er með góðri innréttingu með innbyggðum ísskáp með frysti, innbyggðri uppþvottavél, helluborð og ofn.
Opið rými: við stofu sem hægt er að nýta sem sjónvarpsrými eða loka því og nýta sem svefnherbergi.
Gangur: liggur frá alrými að öðrum rýmum hússins.
Hjónasvíta: með fataherbergi og baðherbergi inn af. Fataherbergi er innréttað með fataskápum. Baðherbergi með sturtu, vegghengdu salerni, vaskinnréttingu og speglaskáp, sturtuhorn er flísalagt. Hurð út á litinn pall að aftan úr herbergi.
Svefnherbergi#2: með harðparketi á gólfi.
Svefnherbergi#3: með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: með vegghengt salerni, góðri innréttingu með vaski og spegli fyrir ofan, walk in sturta með glersilrúmi.
Þvottahús/geymsla: eru í sama rými.
Niðurlag:Frábært fjölskylduhús, stutt frá skóla, leikskóla og verslunarkjarna
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala