Gimli fasteignasala logo
Opið hús:24. ágúst kl 17:15-17:45
Skráð 20. ágúst 2026
Söluyfirlit

Vindás 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
58 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.200.000 kr.
Fermetraverð
968.966 kr./m2
Fasteignamat
48.600.000 kr.
Brunabótamat
32.650.000 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Byggt 1984
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2053515
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna:  Vindás 3, 110 Reykjavík.
Bjarta og fallega endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með suður verönd/sérafnotareit. Eignin er í heildina skráð 58 fm og skiptist í eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á hellulagða verönd, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.

Íbúðin er staðsett á vinsælum stað í góðu hverfi þar sem stutt er í flesta þjónustu, barnaskóla, leikskóla, sund, líkamsrækt, verslun og fleira.
Bókið skoðun hjá Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is


Smellið hér til að sjá myndband af eigninni

NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Með hvítum fataskáp.
Eldhús: Endurnýjað 2021. Falleg hvít innrétting með góðu skápaplássi ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Fallegt harðparket frá Birgisson á gólfi. 
Stofa: Björt með fallegu harðparketi frá Birgisson á gólfi. Útgengi á hellulagða suður verönd sem er sérafnotareitur og heimilt að útbúa stóran afgirtan pall, allt að 3 metra frá húsinu. 
Svefnherbergi: Rúmgott með góðu skápaplássi. Nýlegir fataskápar og fallegt harðparket frá Birgisson á gólfi.
Baðherbergi: Endurnýjað 2025. Flísalagt í hólf og gólf með fallegum ljósum flísum. "Walk in" sturta með svörtu sturtugleri. Vegghengt salerni, hvítur baðinnrétting með svörtum blöndunartækjum og speglaskápur með ljósi.
Geymsla: 4 fm geymsla í sameign.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla. 

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Veghús 21
112 Reykjavík
62.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
880 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dalbraut 1
105 Reykjavík
85.4 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
211
632 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Skeiðarvogur 25
104 Reykjavík
65.1 m2
Fjölbýlishús
211
822 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin