Gimli fasteignasala Vefsíða logo
Opið hús:16. nóv. kl 14:00-15:00
Skráð 11. nóv. 2025
Söluyfirlit

Víkurmói 4 - Íbúð 102

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
77.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.500.000 kr.
Fermetraverð
690.323 kr./m2
Fasteignamat
21.700.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2025
Þvottahús
Lyfta
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2539568
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Gimli fasteignasala kynnir 3ja herbergja íbúð á fyrstu hæð með sér inngangi og 23 fm sólpalli í vönduðu nýju lyftuhúsi. Eignin verður tilbúin til afhendingar í byrjun árs 2026. Íbúðin sem er skráð samtals 77,5 fm að stærð (5,3 fm geymsla innan íbúðar) skilast fullfrágengin án gólfefna á meginrýmum en gólf votrýma verða flísalögð. Innréttingar og skápar frá HTH. Eldhúsinnrétting er tvítóna, með dökkri viðaráferð á efri skápum og ljósum neðri skápum. Aðrar innréttingar eru ljósar. Heimilistæki frá Ormsson, helluborð, ofn, háfur og innbyggð uppþvottavél. Innihurðir eru með mattri hvítri áferð og eru yfirfelldar. Gólf á baðherbergi er flísalagt og veggir flísalagðir að hluta, flísar eru frá Álfaborg. Á baðherbergi er upphengt salerni, sturta, vegleg vaskinnrétting, speglaskápur og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum með staðsteyptum milliplötum. 
Frekari upplýsingar er að finna á söluvefnum http://vikurmoi2-6.is
Nánari upplýsingar veita:
Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is 
Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is 
Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Gengið er af svalagangi inn í rúmgóða forstofu.
Hjónaherbergi: með góðum fataskápum.
Svefnherbergi #2: inn af forstofu með fataskáp. 
Geymsla: inn af forstofu, væri hægt að nýta sem þriðja svefnherbergið eða skrifstofu.
Eldhús/stofa: Rúmgott alrými, eldhúsinnrétting er tvítóna, með dökkri viðaráferð á efri skápum og ljósum neðri skápum. Heimilistækin eru frá Ormsson, helluborð, ofn, háfur, innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Úr alrými er gengið út á 23 fm sólpall.
Baðherbergi: flísalagt gólf og að hluta til á veggjum, walk in sturta með glerskilrúmi. Góð baðinnrétting með vaski og speglaskáp fyrir ofan, handklæðaofni og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Sameign: hjóla- og vagnageymsla í sameign. 
Lóð: skilast fullfrágengin með tengi fyrir rafhleðslu

Víkurmói 4 á Selfossi er vandað fjölbýli með lyftu á fjórum hæðum með samtals 23 íbúðum með sérinngangi af stétt/svalagangi. 

Listi yfir sambærilegar eignir til sölu í húsinu: 

Íbúð 102: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 53,5 mkr. 
Íbúð 103: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 54,1 mkr. 
Íbúð 104: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 54,1 mkr. 

Íbúð 202: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði. 
Íbúð 203: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði. 
Íbúð 204: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði.
Íbúð 205: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði.

Íbúð 302: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði. 
Íbúð 303: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 52,5 mkr. Hlutdeildarlán í boði. 
Íbúð 304: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 53,5 mkr. 
Íbúð 305: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 53,5 mkr. 

Íbúð 402: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 53,5 mkr. 
Íbúð 403: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 53,5 mkr. 
Íbúð 404: 78,2 fm. 3ja herbergja. Söluverð 54,1 mkr. 
Íbúð 405: 77,5 fm. 3ja herbergja. Söluverð 54,1 mkr. 

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 205
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
311
677 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 202
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús
312
677 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 305
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
690 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 405
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
698 þ.kr./m2
54.100.000 kr.
© Copyright 2025 - Gimli fasteignasala Vefsíða
Knúið af
Fasteignaleitin