Gimli fasteignasala logo
Opið hús:08. sept. kl 18:15-19:00
Skráð 4. sept. 2026
Söluyfirlit

Strikið 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
110.6 m2
3 Herb.
1 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
948.463 kr./m2
Fasteignamat
92.600.000 kr.
Brunabótamat
67.750.000 kr.
Byggt 2006
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2273590
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Númer íbúðar
16
Vatnslagnir
upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
upphaflegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
upphaflegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason kynna  kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi/lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri í Sjálandinu í Garðabæ.
Rúmgóðar suðursvalir með svalalokun.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.  Þvottaaðstaða er fyrir bílinn í sérstöku stæði inni í bílageymslunni
Innangengt er úr húsinu í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ en þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf auk þess sem boðið er upp á ýmsa þjónustu og hægt er að fá heitan mat í hádeginu.
Eignin Strikið 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-3590, birt stærð 110.6 fm. 
Bókið skoðun hjá Bárður H Tryggvason  í síma 8965221, eða bardur@gimli.is
Lóðin í kringum húsið er mjög falleg og hefur hlotið viðurkenningu frá Garðabæ.

Góðar gönguleiðir eru allt í kring og stutt er í fjölbreytta þjónustu. Innisundlaug er hinum megin við götuna og gangstétt fyrir framan húsið er upphituð. Hér er um að ræða virkilega fallega og vel skipulagða eign á eftirsóttum stað þar sem þægindi, þjónusta og fallegt nærumhverfi fara einstaklega vel saman.

NÁNARI LÝSING:
Forstofa með skáp.
Rúmgóð stofa og borðstofa í björtu og opnu alrými með eldhúsinu. Útgengi út á suðursvalir úr stofu.
Svefnherbergin eru 2 og mjög rúmgóð með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt með Walk-in sturtu og góðri innréttingu.
Eldhúsið er með fallegri eikarinnréttingu með góðu skápaplássi.
Þvottahúsið er vel innréttað með skápum og flísum á gólfi.
Góð sérgeymsla er innan íbúðar með hillum.
Parket er á gólfum íbúðarinnar. (ekki harðparket)
Í kjallara er sérgeymsla að innaf bílastæðinu.
Bílahleðslustöð er í bílastæðinu og er hún leigð.
Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald. Sameign er snyrtileg og næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Frá anddyri hússins er innangengt beint í Jónshús, félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara í Garðabæ, þar sem Félag eldri borgara í Garðabæ hefur einnig aðsetur. Þar fer fram fjölbreytt félags- og tómstundastarf og ýmis þjónusta er í boði, meðal annars heitur matur og kaffi. Snyrtistofa, hárgreiðslustofa og fótaaðgerðarstofa beint á móti og innisundlaug er í Sjálandsskóla. 

Niðurlag: Björt og rúmgóð íbúð fyrir 60 ára og eldri á frábærum stað í Sjálandinu.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður Tryggvason Sölustjóri, í síma 8965221, tölvupóstur bardur@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Byggt 2006
Fasteignanúmer
2273590
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B0
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Strikið 1B
210 Garðabær
98.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
999 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Bragagata 25
101 Reykjavík
98.2 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
413
998 þ.kr./m2
98.000.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin