Gimli fasteignasala og Sigþór Bragason sími 899 9787 kynna: Glæsilegt og mikið endurnýjað 157 fm einbýlishús á einni hæð ásamt nýrri 15 fm sólstofu. Vel skipulagt hús með fjórum svefnherbergjum. Mikil útiaðstaða með stórri verönd og heitum potti ásamt geymsluskúr í bakgarði.Nánari lýsing:Forstofa með fallegum parketflísum og fataskáp.
Gestasnyrting við forstofu, nýlega endurnýjuð.
Parketlagt
hol miðsvæðis í eigninni
Rúmgott
eldhús með ágætri eldri innréttingu með góðu skápaplássi, rúmgóður borðkrókur og tveir gluggar.
Herbergi 1,framan við herbergjagang, parket og fataskápar
Herbergi 2 við herbergjagang, parket og fataskápar
Herbergi 3 við herbergjagang parket og fataskápar
Herbergi 4 Stórt hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Öll herbergin eru rúmgóð og vel skipulögð
Baðherbergið er allt endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturtuklefi með gler sturtuskjóli, Innrétting,handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Herbergjagangur er parketlagður.
Rúmgóð stofa með parkelögðu gólfi og gluggum á þrjá vegu, gengt er út í bakgarð frá stofu og um aðra hurð í sólstofu.
Sólstofan 15 fm er nýleg, með vínilparketi og hita í gólfi, rennihurð er út á verönd.
Geymsla með hillum og parketlögðu gólfi er innan íbúðar.
Þvottaherbergi með flísalögðu gólfi og glugga.
Bílskúr, innangengt er í flísalagðan bílskúr frá þvottahúsi.
Veröndin er mjög stór og er yfir mestum hluta bakgarðsins.
Heitur pottur er á verönd.
Garðhús er í bakgarði og er raflögn í það.
Endurbætur:Gólfefni á herbergjum 2015
Rofar og tenglar 2015
Bæði baðherbergi endurnýjuð 2015
Eldhús flísalagt 2016
Bílskúr flísalagður 2016
Lofta panill settur í bílskúr og þvottaherbergi 2017
Forstofan 2016
Annað gólfefni 2017
Fataskápar og innihurðir 2017
Þakjárn og þakkantur 2017
Hús og gluggar málað að utan 2017
Skipt um ofna 2018/nema 1
Neðri verönd 2020 efri verönd 2023
Heiturpottur 2020
Garðskúr með rafmagni 2020
Gluggar málaðir að innan 2021 og 2025
Sólstofa smíðuð 2026
Þetta er sérlega falleg og mikið endurnýjuð eign á einni hæð á frábærum stað innarlega í botngötu. Nánari upplýsingar veitir: Sigþór Bragason Löggiltur fasteignasali, í síma 899 9787 eða tölvupósti sb@gimli.is Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala