Gimli fasteignasala logo
Skráð 2. apríl 2026
Söluyfirlit

Kálfhólar 13

EinbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
184.6 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
568.256 kr./m2
Fasteignamat
103.250.000 kr.
Brunabótamat
91.500.000 kr.
Mynd af Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
Eigandi, Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2005
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2272004
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Í góðu ástandi
Þak
í góðu ástandi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
-Rispur í gleri í tveimur gluggum í borðstofu
-Rispur í gleri í tveimur gluggum í svalahurð
 
Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Kálfhólar 13, 800 Selfoss, fallegt, vandað og vel við haldið 184,6 fm einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr í Hólahverfi á Selfossi. Í eigninni eru fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, eldhús, stofa og hol í björtu samlyggjandi rými. Stór fallega gróinn garður með verönd og heitum potti. Gott bílaplan er fyrir framan húsið

Frekari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
, Löggiltur fasteignasali, í síma 792 7576 gudmunda@gimli.is 

Lýsing:
Húsið er á einni hæð, timburhús sem er álklætt. Íbúðarrými er 129,8fm, geymsa/herbergi og bað inn af forstofu 14,5fm og bílskúr 33,3fm þar sem búið er að bæta við fimmta svefnherberginu, samtals 184,6fm. Gengið er inn af skjólgóðri verönd í rúmgóða forstofu með fataskáp. Úr forstofu er gengið inn á gang með baðherbergi og herbergi sem skv. teikningum er skráð geymsla. Af gangi er innangengt í bílskúr þar sem búið er að setja upp fimmta herbergið. Úr forstofu er gengið inn í sjónvarpshol. Úr holi eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi, stofa og eldhús eru á hægri hönd. Hjónaherbergi er me glugga á tvo vegu og góðum fataskápum sem ná upp í loft. Svefnherbegi II og III eru rúmgóð með tvöföldum skápum sem ná upp í loft. Baðherbergi er með hornbaðkari og sturtu, góðri innréttingu og upphengdu salerni.
Gott flæði er úr holi inn í eldhús og stofurými, en veggur á milli borðstofu og stofu er léttur veggur. Eldhús er með vandaðri innréttingu, amerískum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, rafmagnshelluborði og bakaraofni í vinnuhæð. Borðstofa er hluti af eldhúsi og er með fallegum glugga. Gengið er úr eldhúsi inn í búr/þvottahús með góðum skáp og innréttinu og þaðan er hurð út í garð. Stofan er björt og rúmgóð með hurð út á verönd. Upptekin loft eru í eigninni og innfelld lýsing, öll rými eru flísalögð en gólfhiti er í allri eigninni. Húsið stendur á gróinni 770fm hornlóð með veglegum palli, heitum potti og stóru bílaplani. Möguleiki er á að leggja húsbíl eða hjólhýsi.

Vönduð og vel við haldin eign í stuttu göngufæri við Sunnulækjarskóla, FSU og íþróttasvæði.


Frekari upplýsingar veitir Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse
, Löggiltur fasteignasali, í síma 792 7576 gudmunda@gimli.is 


Eignin Kálfhólar 13 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 227-2004, birt stærð 184.6 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse  í síma 7927576, eða gudmunda@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Grafhólar 3
800 Selfoss
190.3 m2
Raðhús á einni hæð
514
514 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Langalda 30
850 Hella
189.3 m2
Einbýlishús á einni hæð
423
510 þ.kr./m2
96.500.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin