Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna: Kjarrmóar 30, 210 Garðabær.Fallegt endaraðhús með rúmgóðum bílskúr, samtals 136,2 fm, á góðum stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Möguleiki er á að hafa fjögur svefnherbergi í húsinu. Einstaklega falleg lóð með góðri útiaðstöðu og skjólgóðum palli með grillskýli. Falleg aðkoma og næg bílastæði. Hiti er í stétt sem liggur frá bílastæði og að inngangi. Eigninni fylgir mjög rúmgóður, sérstæður 30,7 fm bílskúr með mikilli lofthæð og millilofti. Forstofa: Gengið er inn í húsið að sunnanverðu og komið inn í forstofu með flísum og sérsniðnu teppi á gólfi. Góðir fataskápar.
Eldhús: Góð innrétting með granítborðplötum og borðkrók. Gaseldavél. Inn af eldhúsi er þvottarými. Parket á gólfi.
Stofa: Parketlögð stofa með útgengi á einstaklega fallega og skjólgóða lóð.
Baðherbergi: Vegghengt salerni og sturta. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi I: Gott herbergi með rúmgóðum fataskápum. Parket á gólfum.
Svefnherbergi II: Rúmgóðir fataskápar. Parket á gólfum.
Efri hæð: Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæð. Mjög rúmgott opið rými sem er núna nýtt sem stór sjónvarpsstofa en hægt að útbúa tvö svefnherbergi. Rúmgóð geymsla er undir súð á efri hæð. Efri hæðin var að sögn seljanda algjörlega endurnýjuð árið 2022.
Bílskúr: Er 30,7 fm og sérstæður. Einstaklega rúmgóður með mikilli lofthæð, millilofti og rafmagnsopnun á hurð. Hiti er í bílaplani fyrir framan bílskúr.
Falleg lóð er við húsið með útgengi úr stofu á sólríkan pall sem nær yfir lóðina. Yfirbyggt skýli fyrir grill og bekkir með fallegum gróðurbeðum. Hellulögn er við húsið um kring. Hér gefst einstakt tækifæri til að eignast fallegt og vel við haldið raðhús með bílskúr á frábærum stað í Garðabæ.Eignin Kjarrmóar 30 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 207-1040, birt stærð 136.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala