Gimli fasteignasala Vefsíða logo
Skráð 8. okt. 2025
Söluyfirlit

Eddufell 6 (501)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
56.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.500.000 kr.
Fermetraverð
996.473 kr./m2
Fasteignamat
18.150.000 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2531288
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 5.hæð í vönduðu nýju lyftuhúsi. Eignin sem er í heildina skráð 56,7 fm skiptist í opið rými þar sem eldhús, stofa, og borðstofa flæða saman með útgengi á skjólgóðar svalir, rúmgott hjónaherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og 3,4 fm geymslu. Vandaðar innréttingar, sérsmíðaðar frá viðurkenndum framleiðanda. Eldhústæki frá Siemens. Hvítar innihurðir frá Birgisson með svörtum hurðarhúnum. Fallegt ljóst harðparket á alrými og hjónaherbergi, baðherbergi flísalagt. Eignin er í útleigu og verður seld með leigusamningi kr. 289.000 pr/mán. Lokaúttekt (Bst.4) væntanleg í byrjun nóv. 2025.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is


NÁNARI LÝSING
Forstofa: Sérsmíðaður fataskápur í ljósum beige lit. Ljóst harðparket á gólfi.
Alrými; Eldhús/Stofa/Borðstofa: Íbúðin er mjög opin og björt, eldhús, stofa og borðstofa flæða vel saman í alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting frá viðurkenndum framleiðanda, UAB Koalos Medis (Litháen). Skápar í eldhúsi ná upp í loft og eru í ljósum beige lit. Efri skápar með viðaráferð. Mjúklokur á skúffum og skápahurðum. Spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Siemens. Ljóst harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi:  Rúmgott með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Ljóst harðarket á gólfi. 
Baðherbergi: Flísalögð "walk in" sturta með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með handlaug og speglaskáp. Innrétting og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn.
Geymsla: sérgeymsla á jarðhæð.
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Djúpgámar á lóð.
Næg bílastæði eru við húsið. 

VÖNDUÐ EIGN ÞAÐ SEM RÍK ÁHERSLA HEFUR VERIÐ LÖGÐ Á FALLEGA HÖNNUN, EFNISVAL OG FRÁGANG.
STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU, S.S. GRUNNSKÓLA, FRAMHALDSSKÓLA, SUNDLAUG, LÍKAMSRÆKT OG VERSLANIR AF ÝMSU TAGI. SPENNANDI UPPBYGGING AÐ FARA AF STAÐ Í HVERFINU.


Eddufell 2-6 er vandað lyftuhús á 6 hæðum. Eignirnar sem eru 22 eru af ýmsum stærðum, allt frá stúdóíbúðum/vinnustofum til 4ra herbergja þakíbúða (Penthouse) með tvennum svölum.

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu
Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Bólstaðarhlíð 28
105 Reykjavík
55.3 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
211
1029 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Flókagata 10
105 Reykjavík
78.6 m2
Þríbýli
311
749 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
© Copyright 2025 - Gimli fasteignasala Vefsíða
Knúið af
Fasteignaleitin