Gimli fasteignasala og
Ólafur Björn Blöndal löggiltur fasteignasali kynna:
SVARFHÓLSSKÓGUR - SVÍNADALUm er að ræða 68,3 fm vel við haldið sumahús ásamt rislofti og óskráðri geymslu.
Húsið er sérlega vel staðsett í fallegum grónum birkiskógi með útsýni yfir Svínadal. Saunahús og heitur pottur í fallegum lundi á lóðinni ásamt því að lítill lækur rennur um landið. Nýlegt bílaplan fyrir ofan húsið með skemmtilegum göngustíg með lýsingu að húsinu.
Húsið stendur á 5,670 fm leigulóð og er húsið tengt við hitaveitu. Aksturstími frá Reykjavík er ca. 40 mín.
NÁNARI LÝSING:Rúmgóð forstofa með góðum fataskáp.
Innaf forstofunni er baðherbergi með sturtuklefa og góðri innréttingu, tengt fyrir þvottavél og þurrkara.
Hol, gangur þaðan sem gengið er upp í plássgott og bjart risloft þar sem auðveldlega nokkrir geta gist.
Tvö rúmgóð herbergi og er annað þeirra með skápum.
Eldhúsið og stofurýmið er mjög plássgott, Innrétting vel tækjum búin, góð lofthæð og miklir gluggar.
Lítil geymsla innaf eldhúsi. Parket á gólfum og fallegur viðararinn. Útgengt er úr stofu úr á góða verönd sem umlykur húsið á þrjá vegu.
Fyrir neðan húsið er búið að setja upp stóran pall undir körfuboltaaðstöðu.
Lóðin er einstaklega falleg og gróin með krókum, kimum og fallegum lautum.
Símahlið er inn á svæðið.
Lóðarleiga er ca. 248,000 á ári og hitaveita ca. 15,000 pr mán.
Ekið er um Hvarfjarðargöng og eftir það inn Hvalfjörðinn. Mjög fljótlega er afleggjari merkturSvínadalur til vinstri eða einnig hægt að halda áfram að Hótel Glymi þar sem keyrt er hálsinn að Vatnaskógi. Nánari upplýsingar um aksturlleið veitir Ólafur B Blöndal.
Eignin Hléskógar 10 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 223-3042, birt stærð 68.3 fm. Nánar tiltekið eign merkt 01-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindi.
Bókið skoðun hjá Ólafur Björn Blöndal í síma 6900811, eða olafur@gimli.is
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma 6900811, tölvupóstur olafur@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.