Gimli fasteignasala Vefsíða logo
Skráð 4. nóv. 2025
Söluyfirlit

Dalahraun 19

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Hveragerði-810
70.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
52.500.000 kr.
Fermetraverð
742.574 kr./m2
Fasteignamat
34.100.000 kr.
Byggt 2025
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2534255
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Virkilega bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á 2 hæð í byggingu í Hveragerði.

*** Íbúði er seld með fyrirvara ***

Íbúðin afhendist lyklaklár eða fullbúin með gólfefnum, eldhústækjum og öflugu loftræstikerfi.

Um er að ræða 3ja herbergja íbúð í byggingu í Kambalandi sem skilast fullbúin að inna og utan ásamt tyrfðri lóð og hellulögn að framan. 
Samkvæmt fasteignamati er eignin skráð 70,7 fm og þar af geymsla 8,8 fm. nánar tiltekið eign merkt 02-02.
Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, eldhús/borðstofu/stofu í alrými, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, 2 svefnherbergi og geymslu.  
Húsið er staðsteypt og er á tveimur hæðum með alls fimm íbúðum. Á jarðhæð eru tvær íbúðir ásamt sameign þar sem staðsettar eru geymslur og sameign. Staðsteyptur stigi er upp á aðra hæð þar sem eru þrjár íbúðir. Allar íbúðirnar eru með sérinngangi.
Allar innréttingar og skápar eru frá HTH ásamt borðplötu í eldhúsi, parket og innihurðar eru frá BYKO og flísar frá Álaborg. Heimilistæki eru frá Bræðrunum Ormson. 
Ofnar eru í íbúðinni ásamt vönduðu loftræstikerfi sem sér um að endurnýja loftgæðin í íbúðinni, einnig er forhitari á neysluvatninu.
Bílastæði eru á lóð fyrir framan húsið. Lóðin tilheyrir íbúðum að jöfnu, fyrir utan sérafnotafleti sem tilheyra íbúðum á 1.hæð. Fullbúnar hleðslustöðvar eru staðsettar við bílastæði.

Ath. innimyndir eru úr stærri íbúð, ekki sama skipulag í þessari íbúð sjá teikningar.
Myndir með húsgögnum og útimyndir eru tölvuteiknaðar.


Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

Skilalýsing liggur fyrir á skrifstofu Gimli. 
Afhending 15 janúar 2026.


* Frábær staðsetning.
* Sérinngangur í allar íbúðir.
* Stórar svalir.
* Sérgeymslur í sameign.
* Innréttingar frá HTH.
* Vönduð heimilistæki frá AEG (Ormsson).
* Walk in sturta með hertu sturtugleri.
* Rafmagnshleðslustöð á bílastæði.
* Vandað loftræstikerfi sem sér um að endurnýja loftgæðin í íbúðinni.


NÁNARI LÝSING:
Anddyri:
komið er inn í rúmgott anddyri með skápum og flísum á gólfi.
Hol/gangur: með harðparketi á gólfi 
Eldhús: í alrými með fallegri innréttingu frá HTH með ísskáp, uppþvottavél og bakaraofni, spanhelluborði, og viftu.  
Stofa: í alrými með parketi á gólfi og svalhurð út á góðar svalir. 
Baðherbergi/þvottahús: með góðri innréttingu með vaski úr steini, spegli fyrir ofan, handklæðaofni, upphengu WC með hæglokandi setu. Walk in sturtu með sturtugleri og handklæðaofni. Flísar á gólfi og að hluta til á veggjum. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: rúmgott með góðum skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi 2#: með skáp og harðparketi á gólfi.
Geymsla: góð sérgeymsla í sameign. 
Bílastæði: malbikað með rafmagnshleðslustöð. 
Sameign: með geymslum og hjóla- og vagnageymsla.
Lóð: Snjóbræðsla í gangstétt fyrir framan hús er í hluta gönguleiða sem verður hellulögð. Lóð verður þökulögð og gróðurbeð jöfnuð án gróðurs.
Hellulagt sorpsvæði er á lóðinni og aðstaða fyrir ruslakör í forsteyptu ruslaskýli frá Steypustöðinni

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.

Niðurlag:
Góð staðsetning í nýju hverfi sem er í uppbyggingu í Kambalandi í Hveragerði. Stutt í óspillta náttúru og gönguleiðir.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Aldinmörk 12
810 Hveragerði
69.1 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
766 þ.kr./m2
52.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 102
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús með sérinngangi
312
690 þ.kr./m2
53.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 205
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
311
677 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Víkurmói 4 - Íbúð 202
800 Selfoss
77.5 m2
Fjölbýlishús
312
677 þ.kr./m2
52.500.000 kr.
© Copyright 2025 - Gimli fasteignasala Vefsíða
Knúið af
Fasteignaleitin