Gimli fasteignasala logo
Skráð 1. okt. 2026
Söluyfirlit

Austurhólar 2

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
80.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
710.362 kr./m2
Fasteignamat
56.300.000 kr.
Brunabótamat
50.800.000 kr.
Byggt 2023
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2526773
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
nýlegt
Raflagnir
nýlegt
Frárennslislagnir
nýlegt
Gluggar / Gler
nýlegt
Þak
nýlegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna:  Glæsilega nýlega 3ja herbergja íbúð í Austurhólum 2 á Selfossi með fallegu útsýni.

Um er að ræða 80,1 fm. nýlega íbúð á fjórðu hæð með lyftu og fallegu útsýni.
Fjölbýlishúsið er byggt árið 2023 úr steinsteypu og er fimm hæðir með lyftu. Hjólageymsla á jarðhæð. Malbikuð bílastæði og frágengin lóð.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, vönduð ítölsk innrétting frá Cobo með svartar quarts borðplötur, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu með glugga.
Innréttingar og fatskápar eru úr hnotu. Electrolux tæki í eldhúsi. Yfirfelldar hvítlakkaðar innihurðir.
Á gólfum er parket og flísar á baðherbergi. 
Lóð og bílaplan fullfrágengið, malbikað bílaplan og steyptar stéttar upp við hús og snyrtileg aðkoma.


Eignin Austurhólar 2 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 252-6773, birt stærð 80.1 fm. Nánar tiltekið eign merkt 04-06, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.is

NÁNARI LÝSING:
Forstofa:
með fataskáp. 
Eldhús/stofa: í opnu rými, vönduð ítölsk innrétting frá Cobo. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja. Borðplötur svartar quarts. Björt stofa með hurð út á flísalagðar suður svalir.
Hjónaherbergi: með góðum skápum.
Svefnherbergi#2: með skáp.
Baðherbergi: er flísalagt að hluta með ljósum flísum, walk in sturta með glerþili, innrétting með quarts borðplötu. Speglaskápur með ljósum fyrir ofan. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla: er innan íbúðar en auk þess er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Niðurlag:
Stutt í alla helstu verslanir og þjónustu. Leikskóli í göngufjarlægð.

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin