Gimli fasteignasala logo
Opið hús:19. maí kl 17:00-17:30
Skráð 15. maí 2026
Söluyfirlit

Álfheimar 68

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
122.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
87.900.000 kr.
Fermetraverð
719.313 kr./m2
Fasteignamat
79.850.000 kr.
Brunabótamat
63.800.000 kr.
Mynd af Daði Runólfsson
Daði Runólfsson
Skrifstofustjóri, Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 1961
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2021700
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Sagt í lagi/Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Virðist í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já-tvennar
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna:  Álfheimar 68, 104 Reykjavík.

Rúmgóð og björt, samtals 122 fm íbúð á 2. hæð í húsi teiknuðu af Sigvalda Thordarson. Íbúðinni fylgir gott íbúðarherbergi í kjallara með aðgangi að snyrtilegu sameiginlegu baðherbergi, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika eða leigutekjur. Hér er frábærlega staðsett eign þar sem stutt er í Laugardalinn, Glæsibæ, skóla, verslanir og alla helstu þjónustu. 

Anddyri/Hol: Komið er inn í hol með fataskáp og opið að öðrum vistarverum íbúðarinnar. Flísar á gólfi. 
Stofur: Bjartar og rúmgóðar stofur með stórum gluggum. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir. Parket á gólfi.
Eldhús: Eldhúsið er með snyrtilegri innréttingu og rými er fyrir borðkrók.
Þvottahús: Innan íbúðar, staðsett inn af eldhúsi þar sem rúmast vel þvottavél og þurrkari. 
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi er með góðum fataskápum og útgengi á svalir. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Gott herbergi með parketi á gólfi. Fataskápur.
Baðherbergi: Snyrtilegt með flísum á veggjum og gólfi og opnanlegum glugga. 
Íbúðarherbergi í kjallara: Tæplega 15 fm íbúðarherbergi er í kjallara með fataskáp og innréttingu. Parket á gólfi. Aðgengi að snyrtilegu mjög rúmgóðu sameiginlegu baðherbergi með sturtu og þvottavél. 
Geymsla: 14,7 fm geymsla með góðri lofthæð er í kjallara.
Sameign: Sameiginleg hjólageymsla með útgengi á lóð til suðurs. Húsfélagið á íbúðarherbergi á jarðhæð, það er í útleigu og er safnað í framkvæmdasjóð.

Húsið var málað að utan árið 2015. Þakjárn er nýlegt sem og þakrennur og niðurföll. Lóðin hefur verið endurnýjuð; jarðvegi skipt út og grasflötin tyrfð upp á nýtt. Ný hellulögn fyrir aftan húsið með nýrri drenlögn í kringum allt húsið. Hiti er undir stétt að framan. Garðurinn er sleginn yfir sumarið og stæði mokuð í ófærð þegar þarf. Góð aðkoma er að húsinu og malbikuð bílaplön með fjölda bílastæða. Einnig hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. 

Staðsetning eignarinnar er frábær, neðsta hús næst Glæsibæ með allri sinni þjónustu. Stutt er í falleg útivistarsvæði í Laugardalnum, verslanir og þjónustu og heilsugæslu, Hreyfingu líkamsrækt, stóra verslun Nettó í Glæsibæ, leikskóla og skóla. Örstutt göngufjarlægð er í fjölbreytta þjónustu Skeifunnar. 

Eignin Álfheimar 68 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-1700, birt stærð 122.2 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-02, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Bókið skoðun hjá Daði Runólfsson  í síma 6981164, eða dr@gimli.is

Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Mávahlíð 25
105 Reykjavík
104.7 m2
Hæð og ris
513
811 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin