Hesthús c-tröð 11, 110 Reykjavík (Árbær)
13.900.000 Kr.
Hesthús
0 herb.
37 m2
13.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
7.110.000
Fasteignamat
4.073.000

Gimli fasteignasala og Ólafur Björn Blöndal kynna:

HESTHÚS
Víðidalur, Fákssvæðið - Hesthús við C-Tröð 11

NÁNARI LÝSING:

Um er að ræða mjög gott hesthús með grunnflöt 37,9 fm ásamt kaffistofu og snyrtingu í risi sem ekki er inni í skráðum fermetrum. 
Húsið skiptist þannig að um er að ræða þrjár tveggja hesta stíur ( samkvæmt gamla staðli ). Steypt mllligerði og galv. rimlaverk. 
Mjög rúmgóð hlaða sem hægt væri að minnka og bæta þess í stað við stíu eða breyta þremur stíum í fjórar til fimm eins hesta stíur. 
Kjallari er undir hlöðunni og lítið geymsluloft fyrir ofan. Auðvelt er að taka inn hey eða geyma fyrir utan því um er að ræða efstu lengju í götunni með rúmt svæði fyrir ofan. Snyrtileg kaffistofa og snyrting í risi með súðargeymslu. 
Húsið er allt nýklætt að innan með viðarklæðningu. Sameiginlegt gerði og breið og góð stétt meðfram húsinu. 



Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björn Blöndal Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja og skipasali, í síma milli  kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga. 6900811, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til [email protected]

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.