Gimli fasteignasala kynnir: Vel skipulagt 4ra herbergja sumarhús, byggt 2012, með innbyggðum bílskúr í Vaðsnesi, í innan við klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Sumarhúsið skiptist í forstofu, 3 herbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi og bílskúr. Snyrtilegur pallur umhverfis hluta hússins og heitur pottur á palli. Gólfhiti er í íbúðarhluta sumarhússins. Íbúðarrými skráð 96.8 fm og bílskúr 33.2 fm, samtals 130 fm. Sumarhúsið stendur á 0.7 ha eignarlóð.
Nánari upplýsingar veitir Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7737126 eða Halla Unnur, löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til
[email protected] eða
[email protected].
NÁNARI LÝSING:
Forstofa: flísar á gólfi.
Herbergi #1: mjög rúmgott og með skápum.
Herbergi #2: virkilega rúmgott herbergi.
Herbergi #3: ágætt herbergi.
Eldhús: grá innrétting og efri skápar. Tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: bjart og rúmgott rými. Útgengi á pall. Upptekin loft.
Baðherbergi: mjög rúmgott. Innrétting með vaski og speglaskápur. Sturta og vegghengt salerni. Flísar á gólfum og veggjum
Bílskúr: flísar á gólfi, heitt og kalt vatn. Lítið milliloft.
Gólfefni í íbúðarhúsi er p.parket, nema annað komi fram.Niðurlag: vel staðsett og nýlegt sumarhús í Vaðsnesi.
Nánari upplýsingar veitir Elín Rósa Guðlaugsdóttir, löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7737126 eða Halla Unnur, löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, milli kl. 9:00 og 17:00 alla virka daga, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti til
[email protected] eða
[email protected].
Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnaði því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust.
Gimli, gerir betur...Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.