Suðurleið 12, 801 Selfoss
9.900.000 Kr.
Lóð/ Byggingarlóð
0 herb.
0 m2
9.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
8.520.000

Gimli fasteignasala kynnir: 9.627 fm eignarlóð í Tjarnarbyggð í Árborg þar sem byggja má allt að 1500 fm. Rafmagn og allar heimtaugar auk ljósleiðara eru komin að lóðarmörkum. Skólarúta gengur milli svæðisins og Selfoss.

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse í síma 792 7576 eða með tölvupósti [email protected]

Um svæðið:
Tjarnabyggð er heilsárs búgarðabyggð í fjögurra kílómetra fjarlægð frá Selfossi og um 40 mínutna akstri frá Reykjavík. Lóðirnar eru á 600 hektara landsvæði og eru 4-6 saman í klasa. Á milli klasa liggja breiðar göngu- og reiðleiðir til afnota fyrir lóðareigendur. Tjarnarbyggð er skemmtilegur kostur fyrir fólk sem vill búa í sveit en nýta sér alla þá þjónustu sem þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Byggja má íbúðarhús og útihús á lóðunum sem eru allt að 1500 fm stærð og víðtækar heimildir eru til margvíslegrar atvinnustarfsemi sem tengd er landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. Sem dæmi má nefna ýmiskonar dýrahald og ræktun, nokkurskonar frístundabúsap með takmörkuðum fjölda húsdýra, bænda- eða búgarðagisting. Einnig er möguleiki á útleigu gróðurreita fyrir matjurta- eða skólagarða, tamningar, reiðskólar, ýmis fræðslustarfsemi og námskeiðahald um ræktun, náttúru, gróður, meðferð og umönnun dýra. Heimili, skemma, gróðurhús. léttur iðnaður, gistiþjónusta, hesthús sem getur verið allt á einum stað.

Byggingar:
Heimilt er að byggja íbúðarhúsnæði allt að 1000 fm að brúttófleti auk þeirra úthúsa sem fylgja starfsemi sem fram fer á lóðinni, en skulu útihús og íbúðarhús þó aldrei vera stærri en 1500 fm samtals að brúttófleti. Árborg og viðkomandi veitur sjá um allan rekstur svæðisins t.d. snjómokstur, sorphirðu og skólaakstur. Kaupandi greiðir inntaksgöld fyrir rafmagn og heitt og kalt vatn.

Gimli er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð 1982 og fagnar því 40 ára starfsafmæli á árinu 2022. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki og traust. Gimli, gerir betur...

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á. 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.500,- Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.