Fasteignasalan Gimli kynnir: Verslunarhúsnæði á besta stað við Hamraborg. Eitt fyrsta hús þegar ekið inn Hamraborgina með miklu auglýsingargildi. Hentar vel undir verslun, veitingahús eða aðra þjónustustarfsemi.
.Nánari lýsing: Mjög snyrtilegt verslunahúsnæði á jarðhæð sem skiptist í dag í verslunarrými með stórum gluggum og baka til er rúmgott lager/vinnurými, starfsmannaaðstaða með eldhúsaðstöðu og snyrtingu. Léttur veggur er á milli rýma og auðvelt að breyta skipulagi húsnæðisins. Útgönguhurð er einnig á bakhliðinni.
.
Auglýsingagildið er mikið og er húsið mjög sýnilegt þegar ekið er inn Hamraborgina og blasir einnig við umferð sem kemur upp Skjeljabrekku. Gott auglýsingaskili er einnig sýnilegt frá Hafnarfjarðarveginum.
.
Þetta er sérlega snyrtileg eignog vel staðsett á besta stað í Kópavogi
.
Allar upplýsingar og bókun á skoðun veitir Sigþór Bragason löggiltur fasteignasali í síma 899 9787 eða [email protected]