Fasteignasalan Gimli og Sigþór Bragason löggiltur fasteignasali kynnir: Björt og falleg 2ja herbergja endaíbúð á 2.hæð í austur enda hússins merkt 0201.
Sér inngangur í átta íbúða húsi, Steinsteypt hús sem er klætt að utan og viðhaldslítið. Mögulegt er að kaupa fleiri eignir í húsinu..
Gengið í
forstofu um sér inngang.
Hol miðsvæðis í eigninni.
Eitt gott
svefnherbergi með skápum og gluggum á svo vegu.
Baðherbergi með sturtu, innréttingu og opnanlegum glugga.
Stofa og eldhús eru í samliggjandi rými., gengt út á suðursvalir úr stofunni með útsýni yfir Laugarvatn.
Geymsla er innan íbúðar,
Sameiginlegt
þvottahús/þurrkherbergi sem og hjóla og vagnageymsla eru á 1. hæð hússins.
Húsið er viðhaldslítið og er klætt álklæðningu og er einangrað að utan, handrið og gluggar eru einnig úr áli.
.
Flott eign á einum fallegasta og fjölsóttasta stað landsins við Gullna hringinn.
Öll helsta grunnþjónusta og fjölmargir afþreyringarmöguleikar eru til staðar á Laugarvatni:
Verslun, grunnskóli, leikskóli, menntaskóli, kaffihús og veitingar, sundlaug, íþróttahús, Fontanaspa og ýmsir aðrir afþreyingarmöguleikar. Tjaldsvæði, farfuglaheimili, bændagisting, hótel og veitingastaðir. Hægt að leigja bát og sigla á vatninu, veiða í ám og vötnum eða bregða sér í golf eða sund. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og boðið er upp á hellaskoðun, kanóferðir og útiafþreyingu fyrir hópa. Fjölbreytt fuglalíf er í skóginum og við vatnið og fallegar gönguleiðir. Laugarvatnsfjall býður upp á víðáttumikið útsýni. Upp frá Miðdal, um 3 km frá Laugarvatni, er vinsæl gönguleið upp að Gullkistu.
Virkilega góð eign vel staðsett á Laugarvatni.
.
Allar upplýsingar og bókun á skoðun veitir Sigþór Bragason lögg.fasteignasali í síma 899 9787 eða [email protected]