Gimli fasteignasala logo
Opið hús:24. feb. kl 16:30-17:00
Skráð 20. feb. 2026
Söluyfirlit

Háagerði 45

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
72.3 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
952.974 kr./m2
Fasteignamat
65.800.000 kr.
Brunabótamat
41.500.000 kr.
Mynd af Herdís Valb. Hölludóttir
Herdís Valb. Hölludóttir
Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur
Byggt 1962
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2034800
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað
Þak
Þakjárn og pappi endurnýjaður
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Rætt hefur verið um að fóðra skolplagnir og gera nýjan eignaskiptasamning þar sem að garður sunnanmegin verður til sérafnota fyrir neðri hæð og sameiginlegt þvottahús er til sérafnota fyrir efri hæðina.
Formlegt húsfélag fyrir Háagerði nr. 41-49 er að mestu óvirkt og ekki er formlegt húsfélag á milli íbúa í Háagerði nr. 45.
Gimli fasteignasala og Herdís Valb. Hölludóttir kynna: Vel skipulögð og mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð með sér inngangi og útgengi út í sólríkan garð að Háagerði 45, 108 Reykjavík.
Íbúðin skiptist í forstofu, gang, tvö svefnherbergi, tvær stofur, eldhús og baðherbergi.  Eftirsótt staðsetning í smáíbúðarhverfinu þar sem stutt er í helstu þjónustu s.s. skóla og verslanir. Eignin Háagerði 45 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 203-4800, birt stærð 72.3 fm. 
Bókið skoðun hjá Herdísi í síma 694-6166, eða herdis@gimli.is


NÁNARI LÝSING:
Forstofa: Flísar á gólfi og fatahengi.
Eldhús: Nýleg hvít innrétting með góðu skápaplássi, nýleg vönduð tæki m.a. innbyggð uppþvottavél, tveir ofnar ofn í vinnuhæð, span eldavélaborð með sambyggðri viftu í borði, sambyggð AEG þvottavél og þurrkari.
Stofa og borðstofa: Rúmgóðar með harðparketi á gólfi og útgengi er út í sólríkan garð. Auðvelt er að stúka af borðstofu og búa til 3ja svefnherbergið. 
Svefnherbergi I: Bjart með harðparket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi ll: Harðparket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum, sturtuklefi, veggfast salerni og baðinnrétting.


Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda:
Árin 2024-2025: Eldhús og tæki endurnýjuð, gluggar og gler endurnýjað, gólfefni endurnýjuð að hluta, rafmagn endurnýjað að hluta, fataskápar endurnýjaðir og salerni, vaskur og vaskaskápur endurnýjaður.
Fyrrum eigandi endurnýjaði þakjárn, pappa, þakrennur ásamt því að skipta út tréverki þar sem við átti og skipt var um frárenslislagnir út í götu.
*Íbúðin er tóm en notast er við gervigreind við nokkrar myndir.
Niðurlag: Virkilega björt og vel skipulögð 4ra íbúð á vinsælum stað í smáíbúðarhverfinu.
Nánari upplýsingar veitir: Herdís Valb. Hölludóttir Löggiltur fasteignasali og lögfræðingur, í síma 6946166, tölvupóstur herdis@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Njálsgata 58
101 Reykjavík
74.9 m2
Fjölbýlishús
312
933 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Grenimelur 32
107 Reykjavík
94.8 m2
Fjölbýlishús
312
758 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Brautarholt 20
105 Reykjavík
77.2 m2
Fjölbýlishús
312
905 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Gimli fasteignasala logo
Gimli fasteignasala
Kt. 5312230710
Opið mán - fös frá 10:00 til 15:00
Hafðu samband
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - Gimli fasteignasala
Knúið af
Fasteignaleitin